fjárlög 2023.
Hæstv. forseti. Það má kannski segja að á undanförnum mánuðum höfum við að sjálfsögðu verið að horfa til þeirra spáa sem koma frá lögreglunni og frá landamærunum um fjölda fólks á flótta. Við vinnum eftir þeim spám, t.d. í mínu ráðuneyti þar sem við erum að aðstoða sveitarfélögin í húsnæðismálum. Við berum ábyrgð á því þangað til fólk fær vernd. Þegar það er komið með þá stöðu bera sveitarfélögin ábyrgð á því, en við erum að aðstoða sveitarfélögin hvað varðar húsnæðismálin. Mjög mikilvægt verkfæri í þeirri verkfærakistu, sem snýr að húsnæðismálum, sem snýr að félagsþjónustu sveitarfélaga, sem snýr að því að finna fólki atvinnu eða aðstoða það við það, er inni í þessum samningum um samræmda móttöku sem við erum að ganga í núna. Þannig að þar erum við komin með mjög gott tæki þar sem ríkið er í rauninni að aðstoða sveitarfélögin við að hjálpa fólki að aðlagast íslensku samfélagi. Það er mikilvægt til að stuðla að betri lífsgæðum og lífskjörum þessa fólks og ég tala nú ekki um að veita því tækifæri til að fara út á vinnumarkaðinn þannig að það geti farið að vinna fyrir sér. Við erum síðan að setja í gang stefnumótunarvinnu í málefnum útlendinga og innflytjenda og flóttafólks sem verður stýrt úr ráðuneytinu hjá mér. Í rauninni eigum við ekki slíka stefnu. Hún er auðvitað löngu tímabær. Ég geri ráð fyrir því að í slíkri vinnu verði dregin saman gögn um alla þá þætti sem snúa að þeim kerfum sem við erum með til að átta okkur betur á því hvar við stöndum og hvað þarf til að geta haldið áfram að taka vel á móti fólki sem hingað kemur á flótta.