fjárlög 2023.
Hæstv. forseti. Ég verð að byrja á því að þakka hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur fyrir mjög góða og stóra spurningu. Eftir þessa tíu mánuði mína í þessu ráðuneyti breytist aðeins myndin frá þeim sjónarhóli að hafa starfað í þinginu og í fjárlaganefnd. Þetta er svo sterk birtingarmynd um þessi stóru atriði sem blikka á okkur alla daga og við köllum oft áskoranir, sem eru fjármögnun og mönnun heilbrigðiskerfa. Þetta er auðvitað allur heimurinn að fást við. Það leysir okkur ekki undan þeirri ábyrgð. Einfalda svarið er: Jú, ég hef lagt þetta fyrir. Ég fór yfir það í minni ræðu að þegar við erum að tala um rekstur þá er á hverjum degi alltaf að koma fram hvað vantar hér og hvar og í þjónustu og mönnun o.s.frv., og við reynum auðvitað að bregðast við og sjá hvað við getum gert og það snýr að þessum þáttum, þessari miklu áskorun. Það sem ég er að gera núna, fyrir utan að kalla auðvitað eftir auknum fjármunum í tiltekin verkefni — af því að við erum svolítið að horfa á allt kerfið á fjórum málefnasviðum og sumt fellur þar undir — er að setja af stað vinnu, mjög umfangsmikla, sem lýtur að mönnun greinarinnar. Við þurfum að setja mönnunina í samhengi við mannfjölgun og breytta aldurssamsetningu. Hv. þingmaður talaði um 20 ár og það er hárrétt sem hún dró hér fram. Við þurfum líka að setja hana í samhengi við straum ferðamanna og þróunina og tengja við mönnunarmódelin niður á stofnanir úti um allt land til þess að geta raunverulega metið þörfina og þá sagt til um hvað við þurfum mikið því að við (Forseti hringir.) verðum að viðurkenna það hér að þessar tölur sem við lesum í fjárlagafrumvarpi eru yfirleitt bara viðmið fyrir síðasta ár með einhverri uppfærslu.