153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[13:21]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka þingmanni fyrir að koma inn á þetta mikilvæga og knýjandi mál. Við þekkjum skaðaminnkandi úrræði, þau þurfa að vera fjölþætt og eiga við á ýmsum stöðum og eru mjög forvarnatengd þegar kemur að heilbrigðisþjónustu. Ég tek undir með hv. þingmanni að við þurfum að marka skýrari stefnu í þessu og við þurfum að stíga markvissari skref og tengja við það þar sem við getum sagt að við séum með markvissum hætti að vinna að skaðaminnkun. Þetta er það fjölþætt og við missum okkur annars mjög fljótlega út í það að við séum að gera þetta á fjölmörgum stöðum og það eigi við um nánast allt.

Það sem ég get hins vegar tekið fram núna er að ráðuneytið er að vinna í því að efla fræðslu og auðvelda aðgengi að — og þar kom hv. þingmaður inn á þátt þingsins sem ég er mjög þakklátur fyrir og það hefur átt sér stað viðhorfsbreyting sem er mjög jákvætt — gjaldfrjálsum naloxón-nefúða. Hv. þingmaður kom að því hér. Það er mjög mikilvægt skaðaminnkandi úrræði, talandi um bein úrræði, skaðaminnkandi úrræði. Þetta er mjög til bóta fyrir einstaklinga sem nota ópíóíða en ofnotkun þeirra er, eins og við þekkjum, vaxandi vandamál hér á landi. Við eigum ekki að þurfa að brenna okkur á því, bara að sá vandi sé víða, við verðum að takast á við hann hér. Annað sem má nefna í sambandi við skaðaminnkandi aðgerðir er vinna starfshóps á vegum heilbrigðisráðuneytisins um skilgreiningu neysluskammta og það hefur aldrei áður jafn breiður hópur með jafn ólík sjónarmið reynt að ná saman um þetta mál sem hefur ekki náðst í gegnum þingið. (Forseti hringir.) Það eru nú fleiri atriði sem ég hefði gjarnan viljað koma hér inn á.