153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:14]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Fyrir rúmum 20 árum voru lagagreinar samþykktar í lögum um stjórn fiskveiða sem sérstaklega voru ætlaðar til að vinna gegn samþjöppun aflahlutdeildar. Álitið var þá að samþjöppun væri skaðleg, sérstaklega þegar haft væri í huga hversu mikilvæg útgerð fiskiskipa væri fyrir íslenskan þjóðarbúskap og við því þyrfti að bregðast. Of sterk yfirráð fárra aðila yfir fiskveiðiauðlindinni þýði að viðkomandi fái of mikil völd í þjóðfélaginu og staða þeirra sé of sterk gagnvart stjórnvöldum. Samþjöppun geti beinlínis reynst hættuleg fyrir þjóðina, sérstaklega ef viðkomandi standa sig ekki í því að skapa sem mest verðmæti úr auðlindinni, flytji t.d. fisk óunninn úr landi í stórum stíl. Tilfærsla milli byggða reynist skaðleg sveitarfélögum og tilfærsla milli útgerðarflokka geti leitt til þess að minni útgerðir fari halloka. Eins og lögin hafa síðan verið túlkuð þá má einn aðili ráða yfir 12% kvótans og því til viðbótar eiga 49,99% hlut í öllum hinum fyrirtækjunum sem ráða yfir þeim 88% sem út af standa. Þannig getur eigandi eins útgerðarfélags ráðið yfir meira en helmingi kvótans sem árlega er úthlutað. Slíkt gengur augljóslega þvert á anda laganna um að vinna gegn samþjöppun. Á þingmálaskrá má sjá að hæstv. matvælaráðherra gerir ráð fyrir að leggja fram frumvarp í mars á næsta ári þar sem brugðist verður við ábendingum í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá árinu 2019 einmitt í þessum efnum. Um mitt ár 2020 skilaði verkefnisstjórn um bætt eftirlit með fiskveiðiauðlindinni ítarlegri skýrslu þar sem brugðist var við með skýrum hætti vegna athugasemda í skýrslu Ríkisendurskoðunar, m.a. um tengda aðila og raunveruleg yfirráð. Er hæstv. ráðherra ósammála hugmyndum verkefnisstjórnarinnar í þessum efnum? Hvaða aðrar og betri hugmyndir hefur hæstv. ráðherra?