fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég hef nú leyft mér að segja það í þeirri stóru og umfangsmiklu vinnu sem nú stendur yfir undir yfirskriftinni Auðlindin okkar, að við ætlum að leyfa okkur að freistast ekki til þess að slá einhver sjónarmið út af borðinu og það sé þannig að í fullri einlægni séu allar hugmyndir jafnvægar og að þær eigi að vega og meta og þar með talið þau sjónarmið sem hv. þingmaður talar fyrir og mér er kunnugt um að hennar flokkur hefur gert og raunar fleiri flokkar í þinginu. Ég hef hins vegar haldið því um leið til haga að við í VG höfum efasemdir um að markaðurinn sé góður húsbóndi í þessum efnum og muni leysa þau mál sem þarna eru fyrir hendi, kannski fyrst og fremst vegna þess að þá erum við kannski einmitt að toga í þá átt að við aukum líkur á samþjöppun í greininni. Mér er kunnugt um og það kom raunar fram í máli hv. þingmanns að hún telur að hægt sé að búa svo um hnútana að það sé gætt að félagslegum sjónarmiðum og byggðasjónarmiðum í væntanlegum útboðsreglum. Það kann að vera að það sé möguleiki en við skulum skoða það í þeirri vinnu sem nú stendur yfir. En jafnframt vil ég geta þess, vegna þess að hér erum við að tala um samþjöppun og tengda aðila í sjávarútvegi, að það er raunar ekki bara vandamál eða viðfangsefni í sjávarútvegi heldur í fjöldamörgum öðrum greinum íslensks samfélags.