fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Þetta er afar mikilvægt sjónarhorn sem hv. þingmaður dregur hér fram og er auðvitað eitt af lykilviðfangsefnum míns ráðuneytis. Ég vil hins vegar geta þess að þegar við erum að tala um sauðfjárrækt og nautgriparækt er staðan þannig núna að viljinn í matvælaráðuneytinu er algerlega skýr. Ég veit að hv. þingmaður hefur tekið eftir því að við öfluðum sérstaks fjár, í fyrsta lagi við fjárlagagerð yfirstandandi árs um 700 milljónir vegna áburðarhækkunar og síðan í samræmi við tillögur spretthópsins vorum við að auka um 2,5 milljarða á yfirstandandi ári þar að auki. Raunar er gaman að geta sagt frá því í dag að rúmar 900 millj. kr. voru greiddar út fyrir hádegi í dag til einmitt bænda. Þetta kemur ekki utan úr blámanum heldur er þetta í raun og veru rekið áfram af pólitískum vilja og skýrri sýn á það að þarna var komið að því að stjórnvöld yrðu að stíga inn í ástand sem var óbærilegt fyrir þessar stéttir og fyrir þennan hóp, bæði vegna fæðuöryggissjónarmiða en líka vegna þess að afkoman er einfaldlega áhyggjuefni fyrir. Og það er það sem sérstaklega hefur verið rætt um í sauðfjárræktinni að hafi verið erfið staða í raun áður en kom til hvort sem er álags vegna Covid eða stríðsástands.
Hvernig getum við tryggt það að afkoma bænda sé með viðunandi hætti? Við erum með gríðarlega öflugt stjórntæki sem eru búvörusamningar, stjórntæki sem við getum nýtt til þess að ná fram áherslum stjórnvalda í landbúnaði til lengri framtíðar. Við þurfum að þora að taka þá samninga upp með þeim hætti að við séum að horfa til þess að hvatarnir í þeim kerfum dragi okkur í rétta átt, að við séum að einfalda kerfið, gera það skýrara, fækka mælikvörðum og gera það þannig að raunverulegur sómi sé að því fyrir íslenskan landbúnað.