153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:43]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnirnar. Nefna má í fyrsta lagi það sem lýtur að þeirri þjónustu sem sannarlega er þörf á til að Hafró geti veitt stjórnvöldum ráðgjöf um ráðstöfun afla sem heimilt er að draga að landi hverju sinni. Þá er auðvitað frá svo mörgum sjónarhornum alveg gríðarlega mikilvægt að við fjármögnum þetta með viðeigandi hætti. Það er þó þannig að eftir því sem breytingum á lögum um opinber fjármál o.s.frv. hefur undið fram þá höfum við horfið frá því að horfa til markaðra tekna, þ.e. að við værum með tiltekið fjármagn í tiltekin verkefni. Því ætla ég að leyfa mér að svara þessu með þeim hætti að ég bara myndi fagna því ef hv. fjárlaganefnd myndi horfa sérstaklega til þess að Hafrannsóknastofnun sinnir ákveðinni vöktun og grunnrannsóknum sem erfitt er að skera niður vegna þess að þetta er í raun og veru glugginn okkar inn í það hversu mikinn afla við megum draga að landi og er þar með ákveðin breyta í okkar hagstjórn. Því finnst mér að við þurfum að horfa kannski með svolítið öðrum hætti á þennan þátt stofnunarinnar.

En af því að hv. þingmaður spyr um sjókvíaeldið þá erum við með það undir núna og það er löngu tímabært að gera það. Heildarúttekt Ríkisendurskoðunar á stöðunni í sjókvíaeldi á Íslandi, fiskeldi, og samningur við Boston Consulting Group um að leggja línurnar fyrir framtíðarstefnumótun í þessari stóru grein. Þar þurfum við auðvitað að horfa til eignarhaldsins rétt eins og annarra þátta. En það sem mest hefur þó verið kallað eftir er skoðun (Forseti hringir.) og endurskoðun á því með hvaða hætti fjármunir skila sér í heimabyggð.