153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:51]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Eins og kemur fram í máli hans þá voru í raun og veru forsendubreytingar svo aðkallandi á yfirstandandi ári að við þurftum að hafa mjög hraðar hendur. Það dugði okkur ekki bara að bíða og sjá hvernig hlutirnir myndu þróast heldur þurftum við að grípa mjög hratt inn. Það hefur auðvitað ákveðna afgerandi kosti, eins og ég fór yfir hér áðan, bændur eru að sjá þess stað núna síðast í dag, en um leið er það sannarlega rétt að þegar landbúnaðurinn hefur verið studdur um 3,2 milljarða aukalega á yfirstandandi ári vegna þeirra áskorana sem hér er rætt um þá liggur auðvitað fyrir að sumar af þessum áskorunum verða áfram fyrir hendi. Verð á áburði er tiltölulega hátt enn þá. Verð á korni er enn hátt þótt það hafi lækkað. Það er enn þá stríð í Úkraínu, sem er stundum kölluð kornforðabúr Evrópu, og ekkert sem bendir til þess að því ljúki á næstunni. Þess vegna svara ég því játandi, við höldum áfram að fylgjast með stöðu mála. Við ræðum með reglubundnum hætti við helstu innflytjendur á t.d. áburði um væntingar þeirra um verðþróun næstu mánuði. Við fylgjumst líka með ákveðnum vísum um framleiðsluna hvað varðar bæði kjöt og mjólk. Við sjáum ákveðnar breytingar þar og við munum fylgjast með gögnum um ásetning í haust til að átta okkur á stóru myndinni. Þetta eru allt saman tilteknar forsendur sem þurfa að liggja til grundvallar og minnir okkur á það að umhverfi landbúnaðar á Íslandi er síkvikt og við þurfum að vega það og meta frá einum mánuði til annars. En ég vænti þess að það sé öllum mjög ljóst núna sem starfa í innlendum landbúnaði að sú sem hér stendur stendur með innlendum landbúnaði.