153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[14:54]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. matvælaráðherra fyrir greinargóð svör og ég fagna því og er ánægður með það að hún og hennar ráðuneyti ætli að fylgjast áfram með þróun þessara mála. Þetta hefur kannski sýnt okkur það, öllum hér og heiminum, hvað stríð getur haft mikil áhrif á samfélagið okkar. Það er mjög mikilvægt að tryggja fæðuöryggi og tryggja að matvælaframleiðsla verði hér áfram trygg. Ég ætla svo sem ekki að hafa þetta lengra en ég var ánægður með svör hæstv. ráðherra og treysti henni fullkomlega til að sinna þessum málum áfram.