153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:23]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Fjárlagafrumvarpi næsta árs hefur verið lýst sem rýtingi í hjarta kvikmyndagerðarfólks. Í því koma fram fyrirætlanir um að lækka framlag til Kvikmyndasjóðs um þriðjung, úr 1,5 milljörðum í 1 milljarð. 500 milljónir fjúka úr Kvikmyndasjóði en vert er að hafa í huga að úthlutun úr Kvikmyndasjóði er nánast undantekningarlaust forsenda þess að geta sótt fjármagn í erlenda sjóði. Það er gríðarlega mikilvægt að hafa þetta í huga. Vissulega voru endurgreiðslur hækkaðar með þeim erlendu verkefnum sem hingað koma en yfirleitt koma með þeim verkefnum erlendir listamenn eins og kvikmyndatökustjórar, yfirhönnuðir og leikstjórar sem fá svo þjónustu hjá innlendum aðilum sem koma að kvikmyndagerð. Ekki misskilja mig, alls ekki, þetta er mikilvægt, en þetta tvennt er bara gjörólíkt og beinlínis ekki heiðarlegt að vera alltaf að taka það inn í. Þetta er mjög ólíkt. Annars vegar er verið að framleiða innlent sjónvarps- og kvikmyndaefni og hins vegar er verið að starfa við að framleiða erlent efni. Þetta er mjög ólíkt efni. Þegar talað er um að elska íslenskuna og að íslenskan sé hjartans mál þá er það einmitt þarna sem það birtist. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir hvorki meira né minna en 33% lækkun á framlögum til Kvikmyndamiðstöðvar og 28% lækkun til Kvikmyndasjóðs á næsta ári. Þetta þýðir að Kvikmyndamiðstöð verður að draga verulega saman seglin og getur ekki staðið undir þeim verkefnum sem henni var falið að gera samkvæmt þessari nýju kvikmyndastefnu. En ef það er rétt að lækkunin hafi bara verið Covid-aðgerð sem sé að ganga til baka, þá var talað um að Covid-aðgerðin væri 100 milljónir en aukningin væri vegna nýrra kvikmyndastefnu. Hæstv. ráðherra þarf að útskýra þetta. Hvað varð um þessar 400 milljónir eða voru þetta allt Covid-peningar? (Forseti hringir.) Af hverju er allri stéttinni sem starfar í kvikmyndabransanum á Íslandi svona rosalega brugðið? Hver er að misskilja?