153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:29]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina er varðar fjölmiðla. Það er alveg ljóst í mínum huga að það skiptir mjög miklu máli að umgjörð fjölmiðla, hvort sem það er á Íslandi eða hvar svo sem þeir eru í veröldinni, sé góð og að þeir geti starfað og vaxið og dafnað eins og vera ber. Þetta eru þeir aðilar sem veita stjórnvöldum, viðskiptalífi og öðrum aðhald og halda uppi góðri og upplýstri umræðu. Við fórum í það á síðasta kjörtímabili, eins og hv. þingmaður þekkir, að styrkja einkarekna fjölmiðla. Ég tel, og ég hef ávallt sagt það, að það sé í raun og veru aðeins einn liður í því að styðja við þessa umgjörð. Það sem þarf að gera er að horfa í átt til Danmerkur því það sem þeir hafa verið að gera er til að mynda að líta aðeins á skattkerfið hjá sér og það hafa verið ákveðnir skattafslættir eða ívilnanir til fjölmiðla. Það er einn þáttur sem við þurfum að skoða betur. Annað sem við gerðum var að styrkja héraðsblöð hér á landi til að styðja við landsbyggðina sérstaklega, enda gegna þessi héraðsblöð mikilvægu hlutverki. Við fórum líka í það að styðja í raun og veru við ritstjórnir fjölmiðla, fjölmiðla sem eru með ritstjórnir. Og bara svona svo ég taki þetta saman, en kem líka að þessu aftur í andsvari, þá erum við með þessa styrki til fjölmiðla, við þurfum að skoða betur skattumhverfið og við þurfum líka að horfa til RÚV. Er þar eitthvað sem við þurfum að endurskoða? Það er alveg ljóst í mínum huga að þetta er eitt af þeim sviðum þar sem ég tel að við getum gert betur og vildi gera betur og hlakka til samstarfsins við formann allsherjar- og menntamálanefndar í þessum efnum.