153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:38]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Til að svara hv. þingmanni þá er það svo að við þyrftum að endurskoða lög um Ríkisútvarpið. Ég er sannarlega tilbúin til að fara í þá vinnu með þinginu af því að ég heyri hér að það eru margir þingmenn sem vilja endurskoða þetta og ég er að sjálfsögðu til í þá vinnu, sérstaklega þegar tillögurnar koma frá löggjafanum sjálfum.

Aðeins varðandi tekjugrunn eða tekjur fjölmiðla. Eins og ég nefndi hér í svari mínu áðan er landslagið gjörbreytt frá því fyrir bara 10, 15, 20 árum. Hv. þingmaður þekkir það jafn vel og ég að hér var fólk í áskrift að ákveðnum blöðum og þessi fríi aðgangur var auðvitað ekki til staðar þannig að það voru aðrar forsendur. Ég tek undir með hv. þingmanni, ég held að það gæti verið skynsamlegt hjá fjölmiðlum hérlendis eins og erlendis að rukka hreinlega fyrir lestur á þeirra miðlum sem eru núna að mestu á netinu og við sjáum að fjölmiðlar erlendis eru að gera þetta og hví ekki að prófa þessa tekjuöflun og gera það eins?

Aðeins um umgjörð fjölmiðla. Ef við lítum núna til Danmerkur þá er það þannig að ríkisútvarpið þar er ekki á auglýsingamarkaði og á flestum Norðurlöndunum er það þannig. Það er rétt hjá hv. þingmanni að íslenska fjölmiðlaumhverfið er öðruvísi hvað þetta varðar. Við höfum hins vegar tekið eftir því að þegar ríkismiðlarnir hafa farið af auglýsingamarkaði, eins og gerðist á Spáni og svo í Frakklandi, þá fara auglýsingatekjurnar ekkert endilega beint inn til innlendu miðlanna út af því að öll þessi miðlun er orðin svo hnattvædd.