153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[15:48]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir stuðninginn við það að við skyldum hækka endurgreiðslurnar. Það er alveg ljóst að sú hækkun skiptir sköpum fyrir skapandi greinar á Íslandi. Bara svo að ég deili þeirri sýn sem ég hef fyrir skapandi greinar á Íslandi þá er hún að við sjáum umsvifin aukast í kvikmyndum, tónlist, myndlist og öllum hinum skapandi greinum sem gefa okkur mikið sem búum hér og ekki bara okkur sem búum hér heldur bara alls staðar. Mín sýn er sú að þetta verði atvinnugreinar sem ungt fólk velji, það fari í listnám og það sé alveg sjálfsagt að það geti starfað við sína listgrein. Til þess að svo megi verða þurfum við að styðja við umgjörðina. Við þurfum líka að huga að því að þetta sé samkeppnishæft umhverfi. Við fórum í að gera kvikmyndastefnu og hún nær einmitt utan um þetta, hún nær utan um eina af fyrstu aðgerðunum sem var að styðja við Kvikmyndasjóð. Í raun og veru, virðulegur forseti, fengum við meiri fjármuni í það á skemmri tíma en ráðherrann þorði að vona og það voru þessi Covid-framlög. Við settum inn í Kvikmyndasjóð rúmar 800 milljónir á tveimur árum. Fyrir fram hefði maður búist við því að þetta hefði tekið aðeins lengri tíma en við vorum svo sannarlega að styðja við Kvikmyndasjóð. Þetta lítur því út fyrir að vera mjög mikill niðurskurður en það er vegna þess að þetta voru Covid-peningar sem við fengum inn. Restinni af þessu fjárfestingarátaki þarf ég sem ráðherra að dreifa yfir lengra tímabil. Það þýðir ekki að við ætlum ekki að styðja áfram við Kvikmyndasjóð, vegna þess að Kvikmyndasjóður skiptir mjög miklu máli.