fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Eitt af því sem við erum að vinna að í ráðuneytinu er að skoða gjaldtöku og hvernig við getum tryggt að hún sé sanngjörn og að hún skili sér heim í hérað. Þetta er vinna sem við erum að fara í með ferðaþjónustunni og fólkinu sem starfar í henni og tillögur þess efnis, aðgerðaáætlun, munu líta dagsins ljós á næstu mánuðum. En ég legg höfuðáherslu á að við vinnum þetta í sátt og samvinnu við greinina.
Virðulegur forseti. Eitt af því sem fram kemur í máli hv. þingmanns er mikilvægi þess að tengja saman ferðaþjónustu og menningu. Við erum líka að leggja áherslu á núna í nýrri stefnumótun að sinna sérstöðu viðkomandi landshluta eða viðkomandi svæðis. Ég vil nefna í því samhengi Menningarhúsið í Skagafirði. Eitt af því sem við erum að horfa á er til að mynda arfleifð Bertels Thorvaldsens, þ.e. að tengja það saman að faðir Bertels er, eins og hv. þingmaður þekkir mætavel, fæddur á þessum slóðum og Bertel er einn virtasti myndhöggvari Evrópu á 19. öldinni. Við vorum að minnast hans núna fyrir tveimur árum. Ég tel að þarna getum við unnið enn betur saman við að tengja söguna, tengja sérstöðuna og setja þetta inn í menningartengda ferðaþjónustu vegna þess að við sjáum í öllum könnunum að eitt af því sem ferðamenn vilja er að sjá landið og þeir vilja sjá söguna og kynna sér hana eins vel og þeim frekast er unnt.