153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:11]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég hef haft svolítið gaman af því hvernig fjárlagaumræðan er að þróast. Nú er ég búin að sitja undir umræðunni hjá ráðherrum og mér finnst þeir gera svo vel, sitja og hlusta og svara eftir bestu getu og það er greinilegt að getan er mjög mismunandi. En það skiptir máli að spurningum sé svarað. Þess vegna erum við í þessum díalóg. Þess vegna erum við að reyna að nýta lýðræðið og umræðuna hér í þingsal til að dýpka umræðuna og þekkinguna á fjárlögum, fá svör við því sem stendur í fjárlögum eða stendur ekki í fjárlögum. Þess vegna er það áhyggjuefni þegar maður upplifir að maður spyr spurninga og það er ekki einu sinni hægt að svara þeim. Það er ekki einu sinni hægt að svara skýrum spurningum. Fyrir utan að öðrum er ekki svarað eins og varðandi samkeppniseftirlitið áðan. Mér finnst miður að hæstv. ráðherra menningar og ferðamála og samkeppnismála, eða hvað það er allt saman sem virðulegur ráðherra heitir, er (Forseti hringir.) fyrsti ráðherrann sem kemur hingað upp eftir alla þessa umræðu sem við höfum átt hér á einum og hálfum sólarhring og svarar ekki spurningum. (Forseti hringir.) Mér finnst það miður því að þetta skiptir miklu máli fyrir málaflokkana í heild og fyrir fjárlögin líka.