153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:13]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég svaraði nú öllu nema þessu með samkeppnismálin en það er augljóst að það þarf að svara og skýra hlutina kannski betur fyrir hv. þingmanni en kannski mörgum öðrum og ég geri það. Og mér er það ljúft og skylt að svara þessu með samkeppnismálin. Eins og hv. þingmaður veit er aðhaldskrafa á flestar stofnanir og af hverju er hún? Jú, það er vegna þess að við erum stödd á þeim stað í hagkerfinu að það er mikil verðbólga. Ég tek sannarlega þátt í því með fjármála- og efnahagsráðherra að stuðla að því að við getum dregið úr verðbólgunni vegna þess að hún er einn mesti óvinur heimilanna. Það sem við erum að gera varðandi samkeppnismálin er að styðja enn frekar samvinnu við Samkeppniseftirlitið og það er eins og hv. þingmaður hafi ekki alveg unnið sína heimavinnu vegna þess að við erum að styðja við neytendamál, við erum að setja auka 24 milljónir sem hefur ekki verið gert áður.