153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:14]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég verð að gera dálitla athugasemd við athugasemd hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur við fundarstjórn forseta. Þó að það sé rétt sem hv. þingmaður segir, að það hafi skort á ýmis svör í umræðu um það mál sem við ræðum nú, þá get ég ekki tekið undir með hv. þingmanni að almennt hafi umræðan um fjárlög skilað sér í miklum svörum frá hæstv. ráðherrum. Þetta er því ekki undantekning nú heldur frekar reglan í þessari umræðu. Sú regla gefur fullt tilefni til að gera athugasemd við fundarstjórn því að hvað eftir annað höfum við séð ráðherra koma hingað upp og í besta falli segja að það sé verið að velta hlutunum fyrir sér og skoða málin og þeir virðast ekki einu sinni vita sjálfir hvert þeir stefni með sinn málaflokk. Í versta falli, eins og í sumum tilvikum, höfum við mátt mæta hreinum útúrsnúningum. Þannig að þótt ég taki undir með hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur um að það sé mjög jákvætt og virðingarvert að flestir ráðherrar mæti hér til að svara fyrir sinn málaflokk þá hefur að mínu mati verið algjörlega gegnumgangandi að raunveruleg svör eru nánast engin.