fjárlög 2023.
Frú forseti. Ég kemst ekki hjá því að byrja á að spyrja um mál sem hefur aðeins verið nefnt áður í þessari umræðu án þess að fengist hafi tilhlýðileg svör, svo ég vísi nú í umræðuna hérna áðan um fundarstjórn forseta, en það varðar endurgreiðslur virðisaukaskatts vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. Við þekkjum eflaust forsögu málsins að talsverðu leyti. Þetta var umdeilt mál í ríkisstjórninni í fyrra og endaði með því að nú verða settar 300 millj. kr. í að gera upp það sem kalla mætti fortíðarskuld vegna þess að þetta hafði ekki verið nógu vel fjármagnað. Og þá að því sem blasir við okkur nú, sem mér skilst að feli í sér að aðeins eitt verkefni sem klárast á næsta ári muni eiga rétt á um 3 milljörðum kr. í endurgreiðslu, eitt verkefni frá HBO, kvikmyndaframleiðandanum. Á sama tíma er gert ráð fyrir að setja 1,7 milljarða í þessar endurgreiðslur. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Hvernig gengur þetta upp? Munum við horfa fram á sams konar uppákomu á næsta ári og þá þurfi að redda því með greiðslu síðar? Eru menn viljandi að leggja fram fjárlagafrumvarp sem þeir geta séð fyrir að muni ekki ganga upp? Hvernig verður þessi skekkja afgreidd ef eitt verkefni fær næstum því tvöfalt allt það fjármagn sem gert er ráð fyrir að ráðstafa í þennan lið?