153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[16:25]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Það er rétt sem hv. þingmaður nefnir að starfsumhverfi fjölmiðla hefur verið í deiglunni og það hefur ekki ríkt algjör sátt um hvert við eigum að stefna. Mín stefna í þessum málaflokki er sú að það þurfi að styðja við þetta umhverfi þannig að rekstur þeirra verði sjálfbær. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að það er að sjálfsögðu ekki hlutverk ráðherrans að nefna það sem einn möguleika að það sé rukkað fyrir lestur á netmiðlum, en ég nefni þetta sem eitt af því sem aðrir miðlar eru að gera og þekkist víða erlendis. Mín skoðun er sú að allt tekjumódel íslenskra fjölmiðla þurfi að endurskoða algerlega. Við lifum á stafrænum tímum og allt aðgengi hefur gjörbreyst og það þarf að taka tillit til þess. Í fyrsta lagi er það í raun og veru hvernig ungt fólk nálgast fjölmiðla, það er gjörbreytt frá því bara hvernig við nálguðumst það. Ég tel til að mynda að sökum þess að búið er að auka aðgengi og notkun á streymisveitum og öðru slíku eigum við að horfa til þess að þessir erlendu aðilar séu skattlagðir og við nýtum þá fjármuni til að styðja við innlenda aðila. Það er eitt af því sem við erum að vinna að. Við erum núna að móta fjölmiðlastefnu, sem við gerðum ekki á síðasta kjörtímabili, sem mun hafa þessa þætti, þessa styrki, sem ég skil vel að séu umdeildir, en nýjar tekjur, tekjustofna, og að skoða betur umhverfi Ríkisútvarpsins.