fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég ætla að nota tíma minn fyrst og fremst til þess að fjalla aðeins um Evrópusamvinnuna og segja að það hefur aldrei verið neitt hik á okkur í Sjálfstæðisflokknum að lýsa yfir mjög eindregnum stuðningi við Evrópska efnahagssvæðið og þátttöku okkar á því.
Að rækta samninginn getur nú falið ýmislegt í sér. Í fyrsta lagi hef ég lengi verið þeirrar skoðunar að þingið eigi að rækta betur samskipti við Evrópuþingið. Mér finnst sjálfsagt að þingið sé með starfsmann í Brussel sem geti verið beinn milliliður Alþingis við þingið úti og verið svona ínáanlegur, skulum við segja, fyrir þingflokka án þess að þurfa að treysta á milliliði framkvæmdarvaldsins vegna þeirra samskipta. Þetta er bara eitt einfalt atriði. Svo hafa verið skrifaðar skýrslur um það sem við getum gert betur og ég vísa nú til þeirra. Sumt höfum við verið að laga við framkvæmd samningsins. En í framkvæmd samningsins hefur það kannski helst haldið aftur af okkur að við höfum mjög litla möguleika til þess að fylgjast með öllu því sem er að gerast í öllum nefndum sem eru, ef ég veit rétt, á þriðja þúsund úti í Brussel (Gripið fram í: Bara eins og hér.) og það er ekkert smáverkefni. En þegar mál eru komin inn á radar sameiginlegu nefndarinnar þá þurfum við að mínu áliti að gera betur. Þær áleitnu spurningar sem komið hafa upp á undanförnum 25 árum eða svo varða kannski sérstaklega það hvaða afleiðingar það hefði fyrir okkur að neita að innleiða það sem þykir vera mikilvægt fyrir Evrópska efnahagssvæðið. Þeirri spurningu hefur í sjálfu sér aldrei verið svarað vegna þess að það hefur aldrei reynt á hana. En við getum ekki farið í gegnum hvert málið á eftir öðru þar sem slíkar spurningar koma upp og alltaf tekið ákvörðun sem byggir á því að þá myndi eitthvað hræðilegt gerast vegna þess að þá eru forsendurnar fyrir inngöngu á Evrópska efnahagssvæðið dálítið veikar.