153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:24]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Hæstv. starfandi utanríkisráðherra, fjármálaráðherra, nefndi í ræðu sinni að við þyrftum að bregðast við auknum hættum og breytingum vegna loftslagsbreytinga í nálgun okkar á þróunar- og mannúðaraðstoð. Þá spyr ég hæstv. ráðherra: Hvaða breytingar eru það? Það er mikilvægt að vita að fjármagnið nýtist sem best. Plánetan er grænni með hverju árinu. Það er orðið auðveldara en áður að rækta lönd, til að mynda við sunnanvert Sahara, sem áður voru illræktanleg, en á móti kemur að sjávarborð til að mynda fer hækkandi. Á fundi COP26, var það kallað vegna þess að það var 26. tilraunin til að leysa loftslagsmálin, hélt talsmaður eyjaríkisins, smáríkisins, Túvalú áhugaverða ræðu. Hann lýsti því að eyjaskeggjar væru að reyna að búa sig undir hækkandi sjávarborð og hefðu náð að safna talsverðu fé til þess, en að nú, að allmörgum árum liðnum, væri meiri en helmingur fjármagnsins uppurinn og ekki búið að leggja einn einasta stein. Peningarnir hefðu allir farið í ráðgjafa og skýrsluskrif. Því velti ég fyrir mér hvort það geti ekki verið ráð að við hugleiðum hvort framlög okkar skili sér alltaf með þeim hætti sem myndi gera mest gagn eða hvort of mikið fari í að viðhalda sístækkandi loftslagsbákni og í skýrsluskrif.