fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Ég verð að sjálfsögðu að taka undir að það er algjört grundvallaratriði að framlög vegna loftslagsbreytinga vegna aukinnar losunar gróðurhúsalofttegunda, sem ætlað er að ná einhverjum tilteknum markmiðum, verða að skila sér í þeim tilgangi en hverfi ekki í einhverja milliliði og ráðgjafa. En málið snertir okkur Íslendinga með beinum hætti þó að við getum á endanum aldrei orðið stóru örlagavaldarnir hér. Ég læt duga að nefna súrnun sjávar til að benda á eina breytingu sem getur verið ógnandi fyrir lífríkið í kringum Ísland og fiskstofnana. Auðvitað er hlýnun sjávar annað mál sem við kunnum ekki að spá fyrir um nákvæmlega hvaða breytingar geta fylgt. En burt séð frá því þá viljum við vera fullir þátttakendur í alþjóðasamvinnu um að ná þessum yfirlýstu markmiðum og við getum gert það, jafnvel miklu betur en margar aðrar þjóðir. Hv. þingmaður hefur verið óþreytandi að benda á að við séum með mikið forskot og það er alveg hárrétt, en við getum engu að síður náð enn lengra. Mér finnst það mikilvægt í margvíslegu samhengi. Ég ætla að leyfa mér að nefna einn þátt sem allt of sjaldan er í umræðunni sem er bara einfaldlega efnahagslegur öryggisþáttur, að vera sér fullsjálfbær um orkuöflun er alveg risastórt efnahagslegt öryggismál. Það sjáum við betur núna en nokkru sinni fyrr. Gjaldeyrissparnaður af því að geta framleitt orkuna innan lands fyrir samgöngur í stað þess að flytja olíu í tankskipum til Íslands (Forseti hringir.) er líka gríðarlega mikill og þannig væri hægt að telja áfram upp dæmi þess að við höfum ávinning af því að gera vel.