fjárlög 2023.
Virðulegur forseti. Jú, ég vil að sjálfsögðu að fjármagnið sem við setjum í þennan málaflokk nýtist í þeim tilgangi að styðja fólk sem býr í ákveðinni neyð. Og sömuleiðis að fjármagn sem ætlað er til að veita alþjóðlega vernd á Íslandi nýtist fólki sem er raunverulega í þeirri stöðu sem lögin skilgreina — og er þess vegna í þeirri stöðu að geta undir engum kringumstæðum snúið aftur, að fjármagnið nýtist til þess. Ef við smíðum hins vegar kerfi á Íslandi þar sem við sendum út þau skilaboð að það megi vænta mildari og vinveittari niðurstöðu þegar verið er að bera saman við þau alþjóðlegu viðmið sem við höfum komið okkur saman um með öðrum þjóðum þá munum við fá gríðarlegan straum, sem ég hef ástæðu til að óttast að sé raunin nú þegar, af fólki sem ýmist er þegar komið með vernd í öðru landi en fær engu að síður jafnvel efnislega meðferð á Íslandi eða fólk sem í öðrum löndum myndi augljóslega ekki fá efnislega meðferð en fær hana engu að síður vegna séríslenskra reglna hér á landi. Við eyðum ómældum tíma, fjármunum og krafti stjórnkerfisins í að sinna slíkum erindum sem aðrar þjóðir myndu ekki gera og það gengur beint á getu okkar til að sinna þeim sem við ætluðum raunverulega og yfirlýst að sinna. Hér er ég ekki einu sinni byrjaður að tala um dæmin sem við höfum m.a. frá lögreglunni um að verið sé að misnota kerfið, að glæpagengi séu að senda fólk áleiðis til Íslands í þeim eina tilgangi að nýta sér smugurnar í kerfinu og svo vitum við hver (Forseti hringir.) húsnæðisvandinn er fyrir. Þannig að hérna er á ferðinni málaflokkur þar sem er mjög auðvelt (Forseti hringir.) að klúðra öllum peningunum, sem áttu að fara í málaflokkinn, í eitthvað annað.