153. löggjafarþing — 4. fundur,  16. sept. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[17:34]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Nú líður að lokum þessarar umræðu sem fer fram með dálítið breyttu sniði miðað við fyrri ár. Ég ætla að segja það svona til að byrja með að mér finnst ágætisbragur á því hvernig við höfum gert formbreytingu á umræðunni. Það hefur að mínu áliti hleypt lífi í samtalið hér á Alþingi við 1. umr. fjárlaga. Sömuleiðis finnst mér það hafa verið til gagns að kynna fjárlagafrumvarpið áður en það kemur fram á þinginu. Áður kepptumst við við að halda fjárlagafrumvarpinu frá fjölmiðlum, frá þinginu, þar til þing var sett og það var ekki fyrr en að klukkutími var í þingsetningu, eða við skulum segja þrír, fjórir klukkutímar í þingsetningu, sem við slepptum höndum af upplýsingum um fjárlagafrumvarpið. Í öðrum löndum er þessi tími allt að einn mánuður þar sem fjárlagafrumvarpið er kynnt eða allar helstu áherslur þess þar til að það er rætt á þinginu. Kannski getum við komist lengra í aðdraganda þingsins hvað kynninguna snertir og opnað fyrr umræðuna. Mér finnst engin ástæða til að bíða með hana alveg fram á þingsetningardag. Það eru bara aðrir tímar og sjálfsagt að gera það. Þó verð ég að segja þetta með þeim fyrirvara að eins og verklagið hefur verið til þessa þá höfum við ekki haldið á fjárlagafrumvarpinu fyrr en bara einmitt þegar við erum að kynna það. Ég var með 14 eintök af fjárlagafrumvarpinu þegar fjárlaganefnd kom í fjármálaráðuneytið og önnur eintök voru bara enn í prentsmiðjunni. En við höfum gert þetta eins hratt og mögulegt er. Þetta vildi ég bara nefna sem formsatriði, bæði varðandi umræðuna hér í þingsal og eins líka varðandi kynningu málsins. Ég myndi gjarnan vilja halda áfram að þróa þetta til þess að dýpka umræðuna fyrir allan almenning á Íslandi sem þetta mál á endanum snýst að sjálfsögðu um.

Um fjárlagafrumvarpið verð ég að segja að ég hefði sjálfur ekki trúað því hvað hlutirnir hafa tekið miklum breytingum á skömmum tíma á Íslandi og það leiðir kannski fyrst og fremst af heimsfaraldrinum. Mér finnst það hafa verið nánast í fyrradag að ég stóð hér í þingsal að tala fyrir því að við myndum koma á fót þjóðarsjóði í ljósi þess hve skuldahlutföll ríkisins voru orðin hagstæð og við ættum von á mjög háum arðgreiðslum í framtíðinni sem væri skynsamlegt að leggja til hliðar vegna framtíðaráfalla sem mögulega myndu dynja á okkur. En áður en það mál hafði nú endanlega þroskast hér í þinginu þá vorum við skyndilega komin í heimsfaraldur og í mjög djúpan fjárlagahalla þannig að það var ekki nema eðlilegt að það mál væri lagt til hliðar aðeins tímabundið. Og fyrst ég er að minnast á það mál þá ætla ég að nota þetta tækifæri og lýsa því yfir að ég held að við ættum að ræða það mál aftur á þessu kjörtímabili. En ég er nú að nefna þetta vegna þess að það er mikilvægt, og það er eitt aðalatriðið varðandi þetta fjárlagafrumvarp, að við erum að leitast við að stíga ölduna í takt við ganginn í hagkerfinu með þessu frumvarpi. Við gerðum breytingar núna á miðju ári þegar verðbólgumælingar voru að breytast og verðbólguhorfurnar að versna og Seðlabankinn hélt áfram að hækka vexti og hefur hækkað stýrivextina um 3,5 prósentustig á árinu. Þá var ekki nema eðlilegt og ábyrgt að spyrja sig hvort fjárlagafrumvarp næsta árs, sem þá var í undirbúningi í gegnum fjármálaáætlun, mætti þeim áskorunum sem Seðlabankinn var að kalla eftir. Ég rifjaði í því sambandi sérstaklega upp að aðalhagfræðingur Seðlabankans hefur m.a. látið þau orð falla að það væri ákveðin hætta á ofhitnun í íslenska hagkerfinu. Og tölurnar hafa svo sem allar verið á einn veg. Einkaneyslan hefur vaxið mjög verulega, virðisaukaskattsveltan hefur verið langt umfram væntingar, vöruskiptahallinn hefur tekið að myndast á ný og ferðaþjónustan blómstrar og þetta speglast síðan yfir í atvinnustigið. Við þurftum því að spyrja þessara spurninga og það voru gerðar breytingar á fjármálaáætluninni vegna ársins 2023 í sumar, aðallega til þess að auka aðhaldið. Þetta er þó ekki verulega mikið aðhald en það birtist að öðru leyti milli ára í því að það eru smám saman að renna sitt skeið allar stuðningsaðgerðir. Langflestar þeirra runnu þó út á árinu 2022 sem er meira aðhaldsár heldur en nokkurn tímann 2023. Þó er það þannig að við finnum svo sem ekki mikið fyrir aðhaldi í fjárlögum ársins. En ef við skoðum bara allan þann stuðning sem þá var að falla niður, sem sagt á þessu fjárlagaári, þá er á alla hagræna mælikvarða töluvert aðhald í ríkisfjármálunum á árinu 2022. Engu að síður er hagkerfið í gríðarlegri uppsveiflu.

Þetta vildi ég sagt hafa vegna þess að mér hefur þótt það vera stórmerkileg reynsla að fara í gegnum tíma þar sem við virtumst vera að komast á lygnan sjó og í mjög mikið skjól með efnahagsreikning ríkisfjármálanna. Við lendum síðan í þessum gríðarlega stormi þar sem útsýnið var ekkert allan tímann. Við vissum ekki í upphafi hvort faraldurinn myndi ganga yfir á einu sumri, sem við vonuðum, eða hvort það gerðist á einu ári, hvort það kæmi bóluefni, hversu lengi það tæki að koma því út, hvernig það myndi síðan virka, hvort kæmu fleiri bylgjur o.s.frv. Þetta þekkjum við öll. En við tókum ákvarðanir á grundvelli þeirrar þekkingar sem við höfðum hverju sinni og við fórum í gegnum tímabilið ávallt í þeirri trú að þetta myndi einn góðan veðurdag taka enda og það væri skynsamlegt að nýta styrk ríkisfjármálanna til þess að standa með heimilunum. Mér finnst það hafa tekist vel. Þegar faraldrinum lauk þá var viðspyrna í þessum aðgerðum stjórnvalda sem við byggjum stöðuna í dag á og ég er búinn að rekja það hvernig horfurnar hafa lagast mjög verulega. Hagvöxtur í ár og í fyrra er samanlagt rétt undir 10%. Svo kemur þetta frumvarp og það er, alveg öfugt við fjárlagafrumvörp Covid-tímans, lagt fram þegar, eins og ég sagði áðan, talin er vera ákveðin hætta á ofhitnun í hagkerfinu.

Ég tel að við höfum gert rétt með því að auka aðhaldskröfuna árið 2023. Ég hef að sjálfsögðu fylgst vel með umræðunni hér í dag og í gær og reyndar frá því að frumvarpið kom fram og séð að fólk telur að það muni þrengja að rekstri heimilanna með þessum fjárlögum og með tekjubandorminum sem fylgir með. Ég tel að það sé stórkostlega ofmælt. Ég bendi á í því sambandi t.d. að munurinn á því að fylgja 2,5% viðmiðinu sem við höfum látið duga undanfarin ár fyrir krónutölugjöld og skatta og því sem við erum að gera er svona u.þ.b. 0,1% áhrif á verðbólgu, 0,1%. Ég heyri að verkalýðsleiðtogar koma og segja að þetta muni þeir allt heimta í kjarasamningum. Ef það er verið að vísa í þetta sérstaklega þá eru menn væntanlega að tala um, með mjög þungum orðum, að þeir séu að fara að heimta 0,1%. Mér finnst það nú kannski ekki orð sem eru sett fram í neinu samhengi við sjálft málið. Mér finnst líka það hafa verið nokkuð merkilegt að sjá það að þegar við hófum ívilnanir fyrir umhverfisvæna bíla þá voru margir til sem sögðu: Þetta mun ekki gagnast venjulegu heimili neitt, þetta eru ívilnanir sem að langmestu leyti fara til þeirra sem eru að kaupa sér nýjan rafbíl og það eru nú bara hinir vel megandi Íslendingar sem eru í þeim hópi. En þegar við síðan ákveðum að draga örlítið úr þeim stuðningi með því að kynna til sögunnar 5% vörugjald þá á það einmitt að bitna á þessum sömu heimilum sem áttu ekki að fá að njóta ívilnunarinnar. Þannig að mér finnst nú vera ákveðin þversögn í þeim málflutningi. En þó vil ég segja varðandi rafbílana og þær áherslur sem við viljum áfram kynna til sögunnar að það eru nokkrar spurningar um þau mál sem ekki er svarað í þessu frumvarpi. Þar erum við kannski fyrst og fremst að tala um annars vegar bílaleigurnar sem eru að missa af þeirri ívilnun sem rennur út um áramótin og við þurfum að spyrja okkur að því hvort það sé eðlilegt að viðhalda í raun og veru ákveðnum hvata til þess að sækja áfram bensín- og dísilbíla, eins og við erum með í hvatanum eins og hann er byggður upp í dag. Síðan erum við með 20.000 bíla kvótann sem gildir fyrir rafmagnsbílana sem verður fylltur á næsta ári og við þurfum að koma með svör og við munum gera það núna á haustmánuðum um hvernig við viljum mæta því.

Tíminn er fljótur að líða og ég sé að ég er búinn að spæna upp allan tímann sem ég hef hér. Ég vil bara þakka fyrir ágætlega málefnalega umræðu og við bjóðum fram alla aðstoð til að styðja fjárlaganefnd í hennar störfum.