Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 5. fundur,  19. sept. 2022.

varamenn taka þingsæti.

[15:10]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá Njáli Trausta Friðbertssyni, 2. þm. Norðaust., um að hann verði fjarverandi á næstunni. Þá hefur borist bréf frá Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, 7. þm. Suðvest., um að hún geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni.

Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, Berglind Harpa Svavarsdóttir, og 1. varamaður á lista Pírata í Suðvesturkjördæmi, Eva Sjöfn Helgadóttir.

Berglind Harpa og Eva Sjöfn hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðnar velkomnar til starfa að nýju.