153. löggjafarþing — 5. fundur,  19. sept. 2022.

hagræðingarmöguleikar í ríkisrekstri.

[15:22]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég veit ekki alveg hvar maður á eiginlega að byrja núna. Það er ýmist þannig að ríkið er allt of stórt eða ríkið er allt of lítið. Það fer eftir því hver kemur upp í ræðustól úr stjórnarandstöðunni. (Gripið fram í.) Það er annaðhvort þannig að við ættum að sækja miklu meiri tekjur til þess að auka útgjöldin eða eins og hv. þingmaður segir: Við verðum að stöðva vöxt ríkissjóðs. Hér í fjárlagaumræðunni var því haldið fram að tekjur ríkisins sem hlutfall af landsframleiðslu væru allt of lágar, sem er hinn klassíski mælikvarði á umfang ríkisins. Ég hef aðeins reynt að segja mína skoðun á þessu máli í gegnum tíðina og setja umræðuna um báknið og umfang ríkissjóðs í það sem mér finnst vera eðlilegt samhengi. Tökum sem dæmi núna vöxtinn í fjárlagaliðnum Lyf og lækningavörur sem er frá 2017, 63%, útgjöldin hafa hækkað um u.þ.b. 13 milljarða á ári, 13 milljarða. Er þetta merki um einhverja öfugþróun, eitthvað sem við misstum stjórn á? Eða erum við kannski að kaupa betri lyf, tæknilegri, hjálpa fleirum, lækna krabbameinssjúka, ná betri árangri í heilbrigðisþjónustunni? Að sjálfsögðu. Við erum að innleiða miklu betri lyf en árið 2017. Við erum að kaupa fyrir 13 milljarða umfram það sem þá var, vörur og tæki til þess að gera betur. Þetta er ekki merki um að báknið sé að blása út á kostnað skattgreiðenda að óþörfu, að ófyrirsynju. Nei, við erum að nota styrk ríkisins til að sinna þeim verkefnum sem við höfum tekið að okkur að sinna vel. Það er ekkert að því að við aukum við framlögin t.d. í almannatryggingar. Það er ekki báknið að vaxa að ófyrirsynju. Nei, við erum að mæta betur þörfum þeirra sem þurfa á tryggingakerfinu að halda með því að hækka útgjöld almannatrygginga. En við þurfum að sjálfsögðu að gæta þess að missa ekki stjórn á útgjaldavextinum (Forseti hringir.) þannig að við séum með hallarekstur. Þegar sagt er í kjölfar þess að ríkissjóður skilar 100 milljarða betri niðurstöðu (Forseti hringir.) í afkomu að það sé ekki nóg að gert þá segi ég bara: Ég held að menn séu með einhver röng gleraugu uppi þegar þeir eru að lesa reikninga.