hagræðingarmöguleikar í ríkisrekstri.
Virðulegur forseti. Mér finnst alltaf gott þegar ég næ að kveikja í hæstv. fjármálaráðherra, en þetta er einfaldlega staðan. Það er erfitt að heyra að fólk sé enn þá á biðlistum. Við erum búin að auka útgjöld til heilbrigðiskerfisins. En hvað hafa heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra gert til þess að ná betri hagræðingu og betri þjónustu fram fyrir fólkið okkar sem er enn á biðlistum? Og vel að merkja, ég ætla að leyfa mér að vitna í hv. þingmann sem sagði í síðustu viku að frumvarpið liti öðruvísi út ef hann hefði samið það. Hann tekur undir sérstaka gagnrýni á krónutöluhækkanir, hann vill hlusta sérstaklega á gagnrýnina um að hér sé verið að auka útgjöld ríkisins.
Hér er verið að þenja út báknið, hér er verið að fjölga ríkisstarfsmönnum. Er verið að bæta þjónustuna? Nei. Á það að stytta tíma til að minnka vanlíðan fólks sem er á biðlistum? Nei. Ef svo væri þá væri þetta í lagi. En þessi þingmaður kemur ekki úr Viðreisn. Hann kemur úr Sjálfstæðisflokknum og er þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Við verðum einfaldlega að fara að horfast í augu við að Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki notað tækifærið síðustu ár til að sameina stofnanir, til að einfalda kerfið, minnka báknið til þess einmitt að geta notað fjármunina í það að bæta velferðarkerfið. Hægri hagstjórn, vinstri velferð er ekki á dagskrá þessarar ríkisstjórnar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)