153. löggjafarþing — 5. fundur,  19. sept. 2022.

hagræðingarmöguleikar í ríkisrekstri.

[15:25]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég get tekið undir að það mætti fækka ríkisstofnunum og er það sérstakt áherslumál í mínu ráðuneyti, og var reyndar fyrsta þingmálið sem ég lagði fram hér fyrir margt löngu árið 2003, þann vetur, að við þyrftum að gera það. Það er ekki málið sem mun bjarga því sem hv. þingmaður er að tala um og það gerist heldur ekki í fjárlögum. Það er alveg hárrétt að hægt er að gera betur í ríkisrekstrinum en við gerum það ekkert endilega með því að auka ríkisútgjöldin með nýjum fjárheimildum. Það er misskilningurinn. Um það er ég t.d. að ræða þegar ég tala um að við þurfum að halda áfram að finna leiðir til að nýta fjármunina betur, m.a. í blönduðum rekstri í heilbrigðiskerfinu, en það gerist ekki með því að setja nógu marga nýja milljarða á útgjaldahlið fjármálanna. Þetta eru verkefni sem liggja í hverju fagráðuneyti fyrir sig og þeim er ekki öllum stýrt, þótt margir virðist halda það, af fjármálaráðherra. Það er ekki svo. Við höfum víða verið að sameina stofnanir. Má ég rifja upp skattinn og tollinn, (Forseti hringir.) tollstjóri og skattstjóri orðið eitt embætti? Má ég rifja upp Fjármálaeftirlitið og Seðlabankann? (Forseti hringir.) Við höfum verið að sameina ríkisstofnanir með ágætisárangri og ég bara tek undir að við eigum að halda því áfram.