153. löggjafarþing — 5. fundur,  19. sept. 2022.

verklagsreglur lögreglu um vopnanotkun.

[15:46]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Við getum alltaf átt von á því að slíkt geti gerst, ef ég heyrði rétt sem hæstv. ráðherra sagði. Það hryggir mig að heyra það. Það gleður mig hins vegar að heyra að það sé einhvers konar vinna í gangi í ráðuneytinu við endurskoðun á þessum verklagsreglum. Það er að sjálfsögðu hlutverk lögreglunnar að bregðast við tilkynningum sem henni berast en það má ekki bara vera einhvern veginn eða eftir hendingu hverju sinni. Það hlýtur að vera grundvallaratriði að í störfum eina aðilans sem hefur lögum samkvæmt heimild til að beita almenna borgara viðlíka valdi gildi skýrar reglur um þá valdbeitingu og að lögreglan fái viðhlítandi þjálfun. Þetta hlýtur síðan að vera margfalt mikilvægara þegar um er að ræða valdbeitingu í návist okkar allra viðkvæmustu borgara eins og börn. Því langar mig að ítreka spurningu mína til hæstv. ráðherra og bæta við: Er ekki eðlilegt að fyrir hendi séu skýrar verklagsreglur, sérstaklega um það hvernig unnið skuli í útköllum þar sem búast má við að börn séu á staðnum eða í nágrenninu? Ég vil einnig spyrja (Forseti hringir.) hvort ráðherra telji ítrekuð alvarleg atvik af þessu tagi ekki kalla á endurskoðun á þessu verklagi, óháð almennri vinnu við endurskoðun á kerfinu eins og það er í heild.