breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2023.
Virðulegur forseti. Jú, ég get alveg tekið undir það, sérstaklega þegar maður er með svona sérstaka, við skulum bara segja, skattlagningu í ákveðnum tilgangi, þá tel ég að eigi að nýta innheimtu skatta í þeim tilgangi sem lýst var yfir. Alveg eins og ég var á móti því á sínum tíma að við tækjum hluti af innheimtu útvarpsgjaldi til að bæta afkomu ríkissjóðs og lagði til í mínum fyrstu fjárlögum að við myndum leiðrétta það. En sá vandi er hér uppi að við höfum verið með nokkurn rekstrarvanda hjá hjúkrunarheimilunum og þetta hefur gagnast mjög, á sama tíma og okkur hefur langt í frá tekist að framkvæma fyrir þær fjárheimildir sem hafa verið tryggðar til að byggja hjúkrunarheimili. Það er eiginlega aðaláhyggjuefni mitt um þessar mundir, hversu langt á eftir við erum í framkvæmdum miðað við fjárheimildirnar sem við höfum tryggt til að reisa ný hjúkrunarheimili. Það er einn stærsti vandi okkar á sviði hjúkrunarmála á Íslandi og hann smitar síðan yfir á rekstur Landspítalans, sem er alvarlegt mál.