breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2023.
Virðulegur forseti. Til að gera sér grein fyrir því hvort nægir hvatar séu til staðar þá þarf maður í raun og veru að horfa á dæmigerðan innflutning á rafmagnsbílum og bera saman við dæmigerðan innflutning á annars konar bílum. Og þegar maður skoðar þetta bara á grundvelli þeirra reglna sem eru í gildi í dag er alveg augljóst að það er himinn og haf á milli þess stuðnings sem er í boði. Ég hef aðeins verið að koma inn á þetta. Tökum bara dæmi af rafmagnsbíl; hann borgar engin vörugjöld, hann fær mikinn afslátt af virðisaukaskatti — þar til að 20.000 bíla markinu verður náð einhvern tímann á næsta ári og við þurfum að ákveða hvað tekur þá við — og hann borgar meira að segja lægra bifreiðagjald en hinir bílarnir, sem ég tel að sé orðið tímabært að leiðrétta. Þetta er sem sagt hinn beini kostnaður við að eignast nýjan rafmagnsbíl. En þá eigum við eftir að ræða reksturinn þar sem rafmagnsbíllinn (Forseti hringir.) borgar aldrei neitt nema hann kaupir jú rafmagn, á meðan hinn bíllinn borgar skatta allt árið. Það getur verið ástæða til þess að gera þetta. (Forseti hringir.) Ég held að þetta eigi ekki við um allar tegundir rafmagnsbíla.