153. löggjafarþing — 5. fundur,  19. sept. 2022.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2023.

2. mál
[16:45]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Spurningin var: Hvernig fer þessi ákvörðun ríkisstjórnarinnar saman við metnaðarfulla stefnu Íslands í loftslagsmálum og hvað varðar orkuskipti? Ég átta mig á því að hér vegast á ólík sjónarmið en þessi ákvörðun er samt tekin vitandi um að losun er að aukast. Losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi jókst um 3% milli áranna 2020 og 2021. Ég átta mig á þeim veruleika sem hæstv. fjármálaráðherra er að lýsa hvað varðar ólíka gjaldastöðu en þegar maður horfir á stóru myndina varðandi loftslagsbreytingar þá erum við mörg þeirrar skoðunar að það sé eitt stærsta hagsmunamál samtímans og til framtíðar. Þá spyr ég hæstv. fjármálaráðherra aftur: Hvernig fer þessi ákvörðun saman við t.d. stjórnarsáttmálann, um tilteknar aðgerðir í þágu loftslagsins og orkuskipta?