153. löggjafarþing — 5. fundur,  19. sept. 2022.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2023.

2. mál
[17:01]
Horfa

Valgerður Árnadóttir (P):

Frú forseti. Það er eiginlega alveg ótrúlegt að hlusta á hæstv. fjármálaráðherra útskýra fyrir okkur hvers vegna verið er að setja virðisaukaskatt aftur á rafbíla. Hann vildi meina að hvatarnir hefðu gengið svo vel að nú ættum við að draga hvatana til baka. Þetta meikar ekkert sens, ekki í neinum skilningi, ekki í kapítalísku hagkerfi, hvað þá í grænu hagkerfi. Hæstv. ráðherrar ríkisstjórnarinnar státa sig af því að við séum á fullri ferð inn í grænt hagkerfi. Aðaláhersla þeirra er á orkuskipti í samgöngum. En hvernig fer það saman við þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að hækka virðisaukaskatt á rafbíla? Hvernig má það vera að verið sé að hækka virðisaukaskatt á bensínbíla til jafns við rafbíla? Það væri skynsamlegra að hækka gjöld á mengandi fararkosti umfram hækkun á rafbíla til að hvetja áfram til vistvænni ferðamáta, sérstaklega með tilliti til aðgerðaáætlunar Íslands í loftslagsmálum þar sem kveðið er á um að innflutningi á bensín- og dísilbílum skuli vera hætt fyrir árið 2030. Ég get ekki séð að þessi aðgerð styðji á neinn hátt við það.

Það hefur lengi legið fyrir að endurskoða þurfi kerfið í kringum gjaldtöku af ökutækjum frá grunni, bæði til að bregðast við breyttri samsetningu ökutækja en ekki síður til að hvetja almenning og gera honum auðveldara að fjárfesta í ökutækjum. Hæstv. fjármálaráðherra tók einnig dæmi um að almenningur gæti hvort eð er ekki fjárfest í vistvænum ökutækjum, eða ég skildi það þannig, vegna þess að bílarnir sem um ræðir kostuðu um 20 milljónir. Nú þurfti ég sjálf að kaupa mér bíl nýlega. Ég keypti reyndar notaðan tvinnbíl, en ég hefði vel getað keypt notaðan rafbíl í góðu standi á 3 milljónir. Ég hefði getað keypt rafbíl beint úr kassanum á 5,5 milljónir. Ég veit ekki hvaða fólk kaupir sér 20 millj. kr. bíla og við erum ekki að tala um þá fáu á þessu landi sem það gera. Þetta hefur allt saman legið fyrir lengi og það er stórundarlegt að heyra ráðherra tala í kringum þetta fjárlagafrumvarp eins og slík endurskoðun sé að fara í gang einhvern tímann á næstunni. Við höfum lengi þurft aðgerðir í þessu málefni. Ríkisstjórnin býður alltaf upp á einhverjar smáskammtalækningar og með þessum tillögum er engan veginn verið að sníða fjárhagslegu hvatana þannig að þeir styðji eins kröftuglega við orkuskipti og við gætum verið að gera.

Þriðji minni hluti efnahags- og viðskiptanefndar lagði það fram á síðasta löggjafarþingi að ívilnanir hvað varðar vistvæn farartæki yrðu endurskoðuð, svo ég vitni í tillöguna, með leyfi forseta:

„Talnagögnin bera með sér að nýting ívilnana aukist verulega eftir því sem tekjur aukast. Þannig nýtast 47% allra ívilnana fyrir vistvæna bíla efstu tekjutíundinni þegar um einstaklinga er að ræða, en 24% fjölskyldna. Ljóst er því að ívilnunin nýtist í mun meira mæli hátekjuhópum frekar en þeim sem lægri tekjur hafa, og stríðir framkvæmd hennar þannig gegn réttlátum umskiptum í orkuskiptum.“

Nefndin lagði jafnframt fram að ívilnanir yrði útvíkkaðar og myndu ná til annarra minna mengandi farartækja eins og t.d. metanbíla og tengiltvinnbíla. Það hefur ekki verið gert ráð fyrir því hér. Það eru engir hvatar til að kaupa sér annað en rafbíla og nú er verið að draga úr þeim hvötum líka. Í ljósi þessarar niðurstöðu myndi maður ætla að ríkisstjórnin myndi halda áfram þeirri stefnu sinni að gefa afslátt af virðisaukaskatti við kaup á vistvænni farartækjum og frekar hækka álögur á farartæki sem nota mengandi jarðefnaeldsneyti. Svo má ekki gleyma stærstu aðgerðinni í orkuskiptum; að koma fólki úr einkabílnum í almenningssamgöngur, á reiðhjól, á rafmagnsreiðhjól og á tvo jafnfljóta.

Það er heldur ekki að sjá í fjárlögum eða stefnu ríkisstjórnarinnar að hér eigi að byggja upp vistvænar almenningssamgöngur og draga úr notkun einkabílsins nema bara á höfuðborgarsvæðinu. Að efla vistvænar almenningssamgöngur á öllu landinu er aðgerð sem myndi nýtast öllum, bæði íbúum, burt séð frá fjárhag þeirra, og líka ferðamönnum sem hingað koma. Enn og aftur samræmast aðgerðir ríkisstjórnarinnar í fjárlögum ekki aðgerðaáætlun og markmiðum ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Þau eru greinilega fleiri hér sem er annt um að farið sé eftir aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Og svörin sem hún Þorbjörg fékk hér áðan eru ekki nægjanleg. Það þarf að gera betur.