Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 5. fundur,  19. sept. 2022.

evrópskir langtímafjárfestingarsjóðir.

137. mál
[18:00]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er sjálfsagt og ég tek undir mikilvægi þess að slík mál komi snemma fram. Við höfum nú þegar komið einhverjum þeirra til þingsins. En það skiptir máli að þingið fái tíma til að geta vandað umfjöllun sína og afgreitt málin á þeim stutta tíma sem er fyrir nefndastörf og þingstörf. Það tryggir að við náum að að ljúka afgreiðslu þeirra.