153. löggjafarþing — 7. fundur,  21. sept. 2022.

störf þingsins.

[15:03]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Við getum öll átt hættu á að veikjast einhvern tímann á lífsleiðinni. Alvarleg veikindi koma fólki oftast algerlega í opna skjöldu. Á einu augnabliki umturnast líf fólks og ekki er óalgengt að samhliða sæti áherslur, lífsskoðanir og framtíðarsýn fólks endurskoðun. Að ná bata er vegferð sem krefst fullrar athygli fólks. Það skiptir miklu máli þegar við veikjumst að við höfum fullt svigrúm til að setja alla okkar orku og tíma í að hlúa að okkur sjálfum og að ástvinum okkar. En þegar við veikjumst erum við sett í ákveðna stöðu innan samfélagsins, stöðu sjúklings. Þessi staða getur verið miserfið fyrir fólk. Eðlilega er fólk með misgott bakland og misgóða þekkingu á réttindum sínum og því hvernig þjónustukerfin okkar virka. Alls konar ágreiningur getur sprottið upp innan heilbrigðiskerfisins, sem er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt, en það sem er hins vegar óeðlilegt er að sjúklingar eiga sér engan málsvara þegar ágreiningur kemur upp. Sjúklingarnir eru settir í þá stöðu að gæta sjálfir eigin hagsmuna. Afleiðing þess er að fjöldi fólks fær ekki nauðsynlegt rými til að einbeita sér að bata þar sem það þarf að berjast fyrir réttindum sínum innan kerfis sem það er á sama tíma algerlega háð til að ná bata.

Forseti. Ég tel mikla þörf á að stofna sérstakt embætti umboðsmanns sjúklinga til að mæta þörf sjúklinga fyrir bandamann innan heilbrigðiskerfisins sem stendur vörð um hagsmuni sjúklinga, starfar sem opinber talsmaður þeirra og sinnir upplýsingamiðlun og eftirliti með heilbrigðisþjónustu þeirra. Ég hef lagt fram þingsályktunartillögu þess efnis og sent út beiðni um meðflutning. Ég vona innilega að þingheimur taki afstöðu með sjúklingum og sameinist um að styðja þessa tillögu.