153. löggjafarþing — 7. fundur,  21. sept. 2022.

störf þingsins.

[15:07]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P):

Forseti. Svefnlyf, svefnlyf og meiri svefnlyf. Svefnlyfjanotkun Íslendinga hefur oft verið í umræðunni en nýverið fékk ég svar frá heilbrigðisráðherra við fyrirspurn minni um notkun þeirra hjá mismunandi aldurshópum. Notkun svefnlyfja hefur aukist hjá aldurshópum yngri en 40 ára og aukist verulega hjá börnum. Svefnlyfjanotkun hjá börnum hefur meira en fjórfaldast á síðustu níu árum — fjórfaldast. Árið 2012 notuðu sem sagt tíu börn af hverjum 1.000 svefnlyf. Árið 2021 voru það 45 börn af hverjum 1.000 sem voru á svefnlyfjum. Þessi notkun svefnlyfja hjá börnum er mjög varhugaverð og mikið áhyggjuefni. Það bendir ýmislegt til þess að ekki sé verið að sinna þessum foreldrum og fjölskyldum nægilega vel með viðeigandi úrræðum heldur er svefnlyfjum einfaldlega ávísað. Foreldrar vilja lausnir, þau vilja úrræði, eðlilega. En lyfjagjöf er ekki eina eða besta úrræðið við svefnvanda. Svefnmeðferðir sem byggja á atferli hafa sýnt meiri og langvarandi árangur. Þessi aukning í svefnlyfjagjöf er birtingarmynd þess að foreldra skortir úrræði fyrir börnin sín sem eru með svefnvanda. Lyfjagjöf ætti að vera síðasta úrræðið þegar önnur meðferð hefur verið reynd en ekki það fyrsta. Erlendis hefur læknum verið ráðlagt að byrja á að vísa sjúklingum í samtalsmeðferð áður en gripið er til lyfjagjafar. Hér á landi er sálfræðiþjónusta ekki niðurgreidd og því geta læknar hér illa beint fólki í samtalsmeðferð áður en lyfjagjöf tekur við. Staðreyndin er sú að við erum oft að óþörfu að ávísa svefnlyfjum til barna vegna þess að við erum ekki búin að reyna aðrar meðferðir fyrst vegna vanfjármögnunar stjórnvalda á öðrum úrræðum. Afleiðingar af þessu ástandi eru ófyrirsjáanlegar. Stjórnvöld eiga og þurfa að veita fjölskyldum vægara úrræði en lyfjagjöf og það strax.