153. löggjafarþing — 7. fundur,  21. sept. 2022.

skipulagslög.

144. mál
[15:43]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á skipulagslögum varðandi uppbyggingu innviða. Frumvarp sama efnis var lagt fram af umhverfis- og auðlindaráðherra á 151. löggjafarþingi og aftur á 152. löggjafarþingi af þeim ráðherra sem hér stendur, en náði ekki fram að ganga. Frumvarpið byggir á tillögum starfshóps sem skipaður var í tengslum við vinnu átakshóps um úrbætur á innviðum í kjölfar fárviðrisins sem gekk yfir landið í desember 2019. Tillaga starfshópsins var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Einnig voru áform um lagasetninguna og drög að frumvarpi kynnt í samráðsgátt stjórnvalda áður en frumvarp var lagt fram á 151. löggjafarþingi. Jafnframt hefur verið unnið úr þeim umsögnum sem bárust við umfjöllun frumvarpsins á því þingi. Gerðar hafa verið minni háttar breytingar á fáeinum ákvæðum frumvarpsins frá framlagningu á 151. löggjafarþingi sem nánar er gerð grein fyrir í greinargerðinni sem fylgir frumvarpinu.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á græna orkuframleiðslu, sér í lagi í tengslum við orkuskipti. Í þeim tilgangi þarf að treysta betur flutnings- og dreifikerfi raforku í landinu, tengja betur lykilsvæði og tryggja afhendingaröryggi raforku um land allt. Því er mikilvægt að hraða eins og kostur er stjórnsýslumeðferð ákvarðana sem tengjast línulögnum.

Fárviðrið sem gekk yfir Ísland í desember 2019 olli miklu tjóni. Samgöngur lögðust af, atvinnulífið lamaðist á þeim svæðum sem verst urðu úti. Miklar truflanir urðu á flutnings- og dreifikerfi rafmagns sem hafði afleidd áhrif á fjarskiptakerfið og leiddi til sambandsleysis við umheiminn á stórum svæðum í of langan tíma. Í kjölfarið skipaði þáverandi ríkisstjórn átakshóp með fulltrúum sex ráðuneyta sem ætlað var að meta hvaða aðgerðir væru færar til að efla innviði í flutnings- og dreifikerfi raforku og fjarskiptum auk þess að skoða dreifikerfi RÚV og huga að samgöngum og byggðamálum á breiðum grunni. Eitt af því sem átakshópnum var falið að taka til umfjöllunar og úrvinnslu voru fyrirliggjandi tillögur um einföldun leyfisveitingaferla vegna framkvæmda í flutningskerfi raforku en bent hefur verið á að flókið lagaumhverfi hafi hugsanlega valdið töfum á undirbúningi slíkra framkvæmda síðustu árin og þar með tafið nauðsynlega uppbyggingu raforkukerfisins og þar með auðvitað haft þau áhrif að það varð meira tjón í óveðrinu en hugsanlega hefði þurft að vera.

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á skipulagslögum, nr. 123/2010, í tengslum við uppbyggingu flutningskerfis raforku þegar um er að ræða framkvæmdir í flutningskerfi raforku sem ná yfir fleiri en eitt sveitarfélag. Lagt er til að lögfest verði heimild til að taka sameiginlega skipulagsákvörðun sem nái til einnar framkvæmdar í flutningskerfi raforku sem er áformuð í tveimur eða fleiri sveitarfélögum. Slíkar framkvæmdir geta, samkvæmt núgildandi löggjöf, kallað á breytingar á aðalskipulagi og útgáfu framkvæmdaleyfis frá hverju sveitarfélagi fyrir sig. Ef svæðisskipulag er til staðar kann einnig að þurfa að gera breytingar á því með aðkomu allra þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að því. Þannig er aukin skilvirkni í því að heimila töku einnar sameiginlegrar skipulagsákvörðunar fyrir framkvæmd af þessu tagi.

Í frumvarpinu er, eins og áður segir, lagt til að lögfest verði heimild til að taka sameiginlega skipulagsákvörðun um framkvæmdir í flutningskerfi raforku, þvert á sveitarfélagamörk. Slík sameiginleg skipulagsákvörðun verði í höndum sérstakrar raflínunefndar sem skipuð verði fulltrúum allra þeirra sveitarfélaga sem viðkomandi skipulagsákvörðun á að ná til. Í nefndinni eigi einnig sæti fulltrúi Skipulagsstofnunar til að tryggja fagþekkingu bæði gagnvart skipulagsgerð sem og mati á umhverfisáhrifum. Gert er ráð fyrir að framkvæmdaraðili hafi frumkvæði að því að óska eftir að ráðherra skipi slíka nefnd. Beiðni framkvæmdaraðila skal koma fram á undirbúningsstigi framkvæmdar og áður en formlegt ferli samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana er hafið.

Meginhlutverk raflínunefndar verður að undirbúa og samþykkja skipulagsákvörðun vegna viðkomandi framkvæmdar, gefa út sameiginlegt framkvæmdaleyfi og hafa yfirumsjón með eftirliti með framkvæmdinni. Skipulagsfulltrúar viðkomandi sveitarfélaga annast eftirlit með framkvæmdinni í umboði og á grundvelli samstarfssamnings við raflínunefnd. Hvað varðar kostnað við gerð skipulags og útgáfu framkvæmdaleyfis er gert ráð fyrir að framkvæmdaraðili standi undir honum með þjónustugjaldi.

Skipulagsstofnun mun í umboði nefndarinnar annast verkefnisstjórn og samskipti við framkvæmdaraðila. Framkvæmd umhverfismats framkvæmda verður formlega óbreytt en umhverfismatið unnið samhliða og samþætt undirbúningi skipulagsákvörðunar. Gagnvart framkvæmdaraðila, almenningi, hagsmunaaðilum og samráðsaðilum verði ein sameiginleg ásýnd og ein samskiptaleið, kallað „one stop shop“, með leyfi forseta, á enskri tungu. Með slíkri sameiginlegri skipulagsákvörðun um framkvæmdir í flutningskerfi raforku mun gefast betra tækifæri en áður til að leggja heildstætt mat á einstaka jarðstrengskafla, samanber 9. tölulið þingsályktunar nr. 26/148, um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku, og verður það gert á vettvangi raflínunefndar.

Í auglýsingu á tillögu að raflínuskipulagi verður aðalvalkostur auglýstur en jafnframt gerð grein fyrir öðrum valkostum. Gert er ráð fyrir að raflínunefnd geti breytt skipulagstillögu í samræmi við niðurstöðu umhverfismats við endanlega afgreiðslu hennar, enda hafi verið gerð grein fyrir viðkomandi valkosti í umhverfismatsferlinu. Á grundvelli raflínuskipulags og niðurstöðu mats á umhverfisáhrifum er gert ráð fyrir að raflínunefnd gefi síðan út sameiginlegt framkvæmdaleyfi. Ef nefndin kemst ekki að sameiginlegri niðurstöðu er lagt til að málinu skuli vísað til innviðaráðherra sem taki ákvörðun um val og valkosti og þau skilyrði sem framkvæmdin skal háð samkvæmt skipulagi.

Virðulegur forseti. Ég hef hér rakið meginefni frumvarpsins og legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og 2. umr.