153. löggjafarþing — 7. fundur,  21. sept. 2022.

skipulagslög.

144. mál
[16:19]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka andsvarið. Jú, ég hygg að það sé mikilvægt að sveitarstjórnarmenn eigi fulltrúa í þessari raflínunefnd ef af þessu verður. Það hlýtur að þurfa að ná saman á milli sveitarfélaga og það eru auðvitað fulltrúar í sveitarstjórn sem hafa pólitískt umboð til að gera það. Ég velti hins vegar upp svæðisskipulagsforminu af því að mér finnst það passa vel inn í þau skipulagslög og þá skipulagsumgjörð sem við höfum búið okkur. En ég ætla ekki heldur að gera lítið úr því að það er mjög mikilvægt — verði þetta að veruleika, og við eigum eftir að skoða það og kryfja í nefndinni, eins og hv. þingmaður tók fram, þá verður auðvitað að sjá til þess að almenningur hafi tök á því eða eigi kost á því að koma sínum skoðunum á framfæri. Það má heldur ekki loka ferlið inni. Þess vegna spurði ég hér í upphafi og velti fyrir mér hvort í rauninni þessi tiltekna aðferð við að leysa þetta mál eða höggva á hnútinn væri til þess fallin að flýta og einfalda. Það er eiginlega það sem við þurfum að svara í nefndinni.