153. löggjafarþing — 7. fundur,  21. sept. 2022.

ávana- og fíkniefni.

5. mál
[16:50]
Horfa

Flm. (Halldóra Mogensen) (P):

Forseti. Eins furðulega og það hljómar þá vildi ég svo innilega að ég væri ekki að flytja þetta mál. Það væri óskandi að ríkisstjórnin gæti efnt gefin loforð um að hætta að reka skaðlega stefnu í vímuefnamálum. Loforð þess efnis hefur komið fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar á seinasta kjörtímabili og í ræðum hinna ýmsu þingmanna meiri hlutans þegar málið mitt var fellt á sínum tíma, enda er ég að leggja það fram núna í fjórða skiptið. Heilbrigðisráðherrar meiri hlutans halda málinu á þingmálaskrá en þegar kemur að því að efna loforðin þá er málið bara svæft í nefnd eða því frestað.

Forseti. Töfin veldur skaða. Áframhaldandi refsistefna eykur á áföll, jaðarsetningu og dauðsföll. Stríðið gegn vímuefnum er nefnilega stríð gegn fólki, stríð gegn vímuefnanotendum. Það er skylda yfirvalda að verja fólkið í landinu en ekki að fara í stríð gegn þeim. Afleiðing stríðsins er sú harða refsistefna sem verið hefur við lýði á Íslandi í áratugi. Hún byggir á þeirri hugmynd að besta leiðin til að draga úr neyslu sé að banna alla vörslu og meðferð vímuefna og refsa öllum þeim sem gerast sekir um slíkt óháð því hvort viðkomandi sé notandi, söluaðili, framleiðandi eða innflytjandi.

Samhliða hörðum refsingum hefur miklum hræðsluáróðri um vímuefni og neyslu þeirra verið beitt. Enn í dag eru vímuefnanotendur uppmálaðir í fjölmiðlum sem stórhættulegir samfélaginu. Síðustu ár hafa viðhorfin þó blessunarlega verið að breytast frá því að ég var krakki og þurfti að horfa á risastór plaggöt úti um allan bæ sem sýndu fíkniefnadjöfulinn með rauðu augun. Djöfull er eitthvað sem þarf væntanlega að drepa en þegar upp er staðið erum við alltaf að tala um fólk. Sem betur fer erum við byrjuð að tala um fíknivanda á yfirvegaðan og ígrundaðan hátt.

Hugtakið skaðaminnkun hefur rutt sér rúms í almennri umræðu. Staðreyndirnar um bann og refsistefnu mála ekkert mjög fagra mynd. Í skugga stefnunnar hefur neysla vímuefna aukist jafnt og þétt og vandamálum tengdum neyslunni hefur fjölgað gríðarlega. Það ætti að vera öllum ljóst að núverandi stefna, sem gengur út á að banna vörslu vímuefna, er í besta falli gagnslaus og í versta falli mjög skaðleg. Fíkn er nefnilega ekki eitthvað sem fólk velur sér. Fíkn er ekki siðferðis- eða skapbrestur og hún er ekki heldur afleiðing slæms innrætis eða viljaleysis. Fíkn er ekki hægt að lagfæra með refsingum, þvert á móti er fíkn viðbragð við mannlegri þjáningu. Það er í eðli okkar allra að flýja þjáningu. Þegar okkur verkjar fáum við okkur verkjalyf og okkur þykir það sjálfsagt. En þegar manneskja þjáist af andlegum sársauka sökum áfalla sem aldrei hefur fengist aðstoð við og sækist í verkjalyf sem henni hefur ekki verið ávísað, þá þykir okkur sjálfsagt að refsa henni með því að taka af henni lyfin, af því að það er svo sannarlega refsing að taka lyfin af manneskju sem þarf á þeim að halda, og sekta eða mögulega fangelsa hana í stað þess að hjálpa manneskjunni, hlúa að henni og veita henni sjálfsagða heilbrigðisþjónustu. Samfélagið ætlar að aðstoða þessa manneskju með því að gera hana að glæpamanni, jaðarsetja hana og telja henni trú um að hún sé biluð. Henni er meinaður aðgangur að því sem hún þarf mest á að halda sem er kærleikur, hlýja og skilningur. Hún þarfnast hópsins síns og tengslanna en við útskúfum hana.

Forseti. Það er kominn tími til þess að við bindum enda á refsistefnuna. Þess vegna er ég að leggja fram frumvarp um afglæpavæðingu neysluskammta vímuefna í fjórða skiptið. Ég legg málið fram og gef þannig stjórnarflokkunum tækifæri til að efna sín eigin loforð um að hætta að beita skaðlegri refsistefnu í vímuefnamálum. Frumvarpið er einfalt: Innflutningur, útflutningur, kaup, sala og framleiðsla vímuefna verður enn óheimil með lögum en varsla efnanna innan skilgreindra marka verður gerð refsilaus. Ef frumvarpið nær fram að ganga þá getum við strax hætt að refsa fólki fyrir það eitt að vera með vímuefni á sér til eigin nota því að það er alveg deginum ljósara að það er nákvæmlega engin aðstoð og engin forvörn fólgin í því að jaðarsetja, fangelsa, sekta eða taka efni af fólki. Þá skiptir engu máli hvort um er að ræða einstakling með fíknivanda eða ekki.

Þegar við hættum loksins að heyja stríð gegn jaðarsettu fólki í samfélaginu þá getum við sett orkuna í að draga úr þjáningu, að aðstoða fólk við að vinna úr áföllum og græða sár. Við getum byggt upp meðferðarúrræði sem grundvallast á því að vinna úr áföllum og bjóða upp á lausnir sem leysa líkamlegan, andlegan og félagslegan vanda sem skapar fíknina. Það er þannig sem við náum árangri.

Forseti. Ég vona svo innilega ef þetta mál nær ekki fram að ganga að heilbrigðisráðherra standi í alvöru við það að koma með mál inn á þingið og að það sé raunverulegur hugur og hjarta á bak við það að vilja hætta að refsa fólki. Það veldur skiljanlega áhyggjum þegar heilbrigðisráðherra kemur fram í fjölmiðlum og talar um hugmyndir um að halda áfram að taka efni af fólki eða að skipta hópum í tvennt, að halda áfram að refsa fólki sem á ekki við vanda að stríða en hætta að refsa þeim sem eiga við vanda að stríða. Þetta sjónarmið flettir nefnilega ofan af gríðarlegri vanþekkingu og skorti á skilningi á málaflokknum. Refsingar skila ekki árangri. Við höfum áratugareynslu af þeirri stefnu og hún virkar ekki. Það hlýtur að koma að því að við horfumst í augu við að þessi tilraun virkaði bara ekki. Þá ber okkur sem löggjafa skylda til að breyta stefnu sem virkar ekki.