ávana- og fíkniefni.
Virðulegur forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir mjög svo innblásna ræðu sína og þær sem fylgt hafa á eftir sýna að þetta er mörgum hjartans mál. Refsistefnan gengur ekki upp. Stríðið er tapað en hvernig náum við þá friði? Ljóst er að fælingarmáttur refsistefnunnar er minni háttar og afleiðingin er sú að fólk sem glímir við fíknisjúkdóma fær síður þá hjálp sem það þarf. Má þar nefna úrræðaleysi foreldra barna með fíknivanda ásamt þeim hópi sem glímir bæði við geðræn vandamál og fíknivanda. Við verðum að fjölga úrræðum sem í boði eru. Ég er hjartanlega sammála því að fíknivandann eigum við að afgreiða innan heilbrigðiskerfisins. Um slíkt hefur landsfundur Sjálfstæðisflokksins ályktað undanfarin ár og það verður vonandi engin breyting þar á. Mér finnst í raun ömurlegt að staðan sé ekki orðin betri en raun ber vitni miðað við þau álitaefni sem samfélagið allt hefur einhvern veginn sammælst um, að fíkn sé sjúkdómur og hana beri okkur sem samfélagi að meðhöndla með mannúð í fyrirrúmi. Það er auðvitað orðin þekkt staðreynd að framkvæmd laganna er ekki í samræmi við bókstaf þeirra og það misræmi framkvæmdar og laga ber okkur hið minnsta að leiðrétta.
Ég styð markmið þessa máls að styðja við einstaklinga með vímuefnavanda, en skilur fólk raunverulega hvað er undir og tekur þetta tiltekna mál nógu vel utan um málaflokkinn í heild sinni? Í greinargerðinni er skautað fram hjá nokkrum álitaefnum. Kaflinn um mat á áhrifum er t.d. svolítið rýr. Talað er um að fjármagn sparist en hvergi koma neinar fjárhæðir til sögunnar. Ég er ekki alveg viss um að það fjármagn sem sparast nái að dekka kostnaðinn sem hlýst af því að stórefla forvarnarstarf og þau meðferðarúrræði sem tækla fíknivandann. Né inniheldur sá kafli tillögur um að efla forvarnir og meðferðarúrræði, þar er hnúturinn. Þann hnút verðum við að leysa.
Núverandi refsistefna heldur ekki aftur af neyslunni, eins og kom fram í máli hv. þingmanns, en árangur í forvarnarmálum er þó ótvíræður hvað varðar börn og ungmenni. Það er algerlega ljóst að við þurfum að leggja meiri áherslu á fræðslu og forvarnir og það er kannski eitthvað sem ég sakna í greinargerðinni. Það var tæpt á því en kannski ekki nógu vel ígrundað með hvaða hætti ætti að fjármagna það. Fíkniefnaneytendur hafa stofnað samtök og það er mikilvægt að við ræðum við þann hóp í framhaldinu. Þau koma fram með formerkjunum: Ekkert um okkur án okkar, sem er gott markmið. Þá er líka mikilvægt að samtök fanga hafi eitthvað að segja því að ástæða fangelsisvistar er að stórum hluta vegna fíkniefnabrota og fangar glíma margir hverjir við fíknivanda sjálfir. Ástandið þar er ekki gott.
Ég ætla ekki að staldra lengi við framkvæmdahluta laganna en það sem er mest milli tannanna á fólki er skilgreiningin á því hvað neysluskammtur er. Skilgreiningin er óljós. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir tíu daga skömmtum en svo er gefin reglugerðarheimild til ráðherra að útfæra frekar hvað það þýðir. Tíu dagar hljómar bara ósköp mikið fyrir almenning og þarf að hafa það í huga við framgang málsins. Mig langar líka að við höfum í huga hvort það sé fíklum til framdráttar að ráðherra setji reglugerð um skammtastærðir þar sem við getum engan veginn gert okkur grein fyrir hvort hann hafi einhverja grunnþekkingu á þessu máli. Og gott er að hafa í huga, eins og hv. þm. Hildur Sverrisdóttir sagði í sinni frábæru ræðu undir stefnuræðu forsætisráðherra, með leyfi forseta, að það „er grundvallarforsenda í frjálsu samfélagi að lagareglur okkar séu alltaf hugsaðar út frá því hvernig við myndum vilja hafa þær ef vont fólk væri við völd“. Ég held að það sé einmitt spurningin, hvort þetta lagafrumvarp, hvort þessi breyting sé nógu vönduð til að tryggja þetta sjónarmið.
Ég segi auðvitað: Já, leysum fíknivanda fólks innan heilbrigðiskerfisins. Þar á það heima. En á sama tíma efast ég líka verulega um getu heilbrigðiskerfisins til að tækla þennan vanda. Í fyrsta lagi er mikið gert úr því markmiði í greinargerð málsins að það sé til þess fallið að hjálpa fólki með fíknivanda, en höfum við greint núverandi kerfi nógu vel til að ráðast í þessar stóru breytingar eins og þær standa í frumvarpinu? Ég myndi telja það vera byrjunarpunkt. Ég hefði viljað sjá þetta frumvarp fjalla meira um það. Það sem ég kalla í raun og veru eftir er úttekt á heilbrigðiskerfinu og löggæslunni sem fær þessi mál. Hvar er flöskuhálsinn? Sögurnar segja okkur að kerfið sé hlaðið fordómum og flöskuhálsum, ekki síst vegna óþolandi langra biðlista í kerfinu sem verða þess valdandi að við missum of mikið af unga fólkinu okkar því að fíknin þolir enga bið. Ef við eigum til þessi gögn, og gæti vel verið að margir angar hafi verið rannsakaðir og skýrslurnar séu til og liggi bara tvist og bast, þá þarf að taka þetta allt saman. Það þarf að taka málaflokkinn til gagngerrar endurskoðunar frá A til Ö, allt frá framleiðslu innan lands og/eða innflutningi, dreifingu efnanna, sölu og refsinganna og svo loks hvernig við ætlum að hlúa að þeim sem eiga erfitt með neysluna. Kannski verður niðurstaðan lögleiðing, kannski er það farsælasta lausnin. Við þurfum að hafa hugrekki til að fara í heildarendurskoðun á þessu kerfi og taka málaflokkinn upp í heild sinni.
Það sem ég vildi sérstaklega segja í minni ræðu er að við þurfum að sjálfsögðu að standa með fólki í viðkvæmri stöðu. Við þurfum að mæta því fólki þar sem það er. Refsistefnan er dauð.