ávana- og fíkniefni.
Forseti. Ég þakka þessa ræðu sem snerist um að styðja en samt ekki, vilja taka skrefið en samt ekki. En þetta eru svo sem kunnugleg stef í mínum huga því að þetta er í fjórða skipti sem ég legg fram þetta frumvarp. Varðandi hversu vandlega unnið frumvarpið er þá má kannski fylgja að þetta er í fjórða skipti sem ég legg það fram og það eru búnar að koma ótal margar umsagnir við málið og þetta hefur verið í meðferð velferðarnefndar oftar en einu sinni. Við höfum tekið athugasemdir og umsagnir og uppfært málið út frá því, tekið tillit til alls konar mismunandi sjónarmiða og reynt að finna lausnir og málamiðlanir. Því er þetta búið að vera í vinnslu í mjög langan tíma með aðkomu margra sérfræðinga, svo það sé sagt.
Í hvert einasta skipti sem ég legg þetta fram heyri ég afsakanir frá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins þar sem ég heyri ítrekað: Það þarf að rannsaka þetta betur, skoða þetta, úttekt hérna, samantekt þarna, heildarendurskoðun á málaflokknum, það er ekki hægt að gera þetta án þess að gera hitt líka. Þetta er fyrirsláttur. Staðreyndin er sú að ég held að þingmenn Sjálfstæðisflokksins — þrátt fyrir fögur fyrirheit og orðræðu um hversu annt þeim er um frelsið og að afglæpavæða, þá sé ekki vilji til staðar að stíga skrefið.
Mig langar að spyrja, í ljósi þess að núverandi refsistefna hefur ekki skilað okkur neinum árangri nema við teljum aukna vímuefnaneyslu vera árangur, sem ég get ekki ímyndað mér að nokkur myndi gera, hvers vegna í ósköpunum eigum við að halda áfram að refsa fólki þegar við vitum að það gerir ástandið verra? Hver er réttlætingin fyrir því?