153. löggjafarþing — 7. fundur,  21. sept. 2022.

ávana- og fíkniefni.

5. mál
[18:13]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þetta andsvar hv. þingmanns. Ég er ósammála því að það sé einhvers konar fyrirsláttur að vilja taka málaflokkinn upp í heild sinni. Það hefur bara ekki verið gert svo ég viti, að hann sé tekinn algjörlega frá framleiðslu og til notandans. Ef slíkt skjal, skýrsla eða einhvers konar greinargerð liggur fyrir þá þætti mér vænt um að fá það. Það er einmitt þetta samspil löggæslunnar og heilbrigðiskerfisins sem ég velti fyrir mér. Það er enginn fyrirsláttur að ég sagði það mjög skýrt að ég styð markmið þessa frumvarps. Mér finnst líka mjög mikilvægt að við gerum það á ábyrgan hátt. Frelsi fylgir ábyrgð, þannig er það. Það hafa líka komið upp neikvæðar raddir hvað varðar þetta frumvarp og frá þeim geirum sem koma að þessum málum, lögreglunni t.d. Það er kannski spurning hvort við þurfum aðeins víðtækara samráð, sátt eða einhvers konar samtal til að leysa þetta á farsælan hátt. En eins og ég kom að í ræðu minni þá er líka misræmi milli þess hvernig er rætt um refsingar í þessum málum hvað varðar vörslu fíkniefna, því að lögin segja eitt en framkvæmdin reynist svo einhver önnur. Það virðist vera einhver mildun á því hvernig lögreglan meðhöndlar þessi mál og kannski er það eitthvað sem myndi koma fram ef farið væri í heildarendurskoðun á málaflokknum.