ávana- og fíkniefni.
Forseti. Ég þakka svarið. Ég er alveg sammála hv. þingmanni um að það væri frábært að fara í heildarendurskoðun á þessum málaflokki. Það sem ég er ósammála er að við eigum ekki að þurfa að bíða eftir því að hætta að refsa fólki með því að hætta að beita skaðlegri refsistefnu, stefnu sem við vitum að er skaðleg. Við eigum ekki að halda áfram að auka á þjáningu og áföll fólks á meðan við erum að bíða eftir heildarendurskoðun. Nei, hættum skaðlegu stefnunni strax vegna þess að við viljum bjarga mannslífum og förum síðan í heildarendurskoðunina. Það er bara frábært. Svo getum við séð hvað kemur út úr henni. En hættum að beita þessari refsistefnu sem við vitum að virkar ekki og er skaðleg.
Hv. þingmaður talar um að það sé mikilvægt að gera þetta á ábyrgan hátt. Gott og vel. Er ábyrgt að halda áfram refsistefnu sem virkar ekki og veldur skaða? Er það ábyrgt? Þurfum við ekki, ef við viljum vera ábyrg, að hætta að auka á þjáningu og vanda fólks og gera það strax?
Það er eðlilegast í heimi og mjög skiljanlegt að lögreglan vilji ekki afglæpavæða. Ég skil það mjög vel. Ég var í útvarpsviðtali með lögreglumanni til 20 ára um daginn. Hann talaði um þetta. Þetta er verkefni lögreglunnar. Lögreglan er ekki í stefnumótun. Verkefni þeirra er að fara eftir lögunum sem við setjum hér inni. Lögreglan þekkir ekkert annað en að refsa fólki og þetta snýst líka gífurlega mikið um fjármagn til lögreglunnar. (Gripið fram í.) Jú, það er verið að sekta fólk og það er verið að taka efnin af fólki og það eru margar sögur. (Gripið fram í.) Jú, ég er búin að sitja fundi með mörgum notendum (Forseti hringir.) sem segja mér sögur sínar og ef þú talar við helstu skaðaminnkunarsamtökin og helstu sérfræðinga í skaðaminnkun, fólkið sem vinnur með notendum á gólfinu, þá er víst verið að refsa fólki. (Forseti hringir.) Það er verið að beita sektum og það er verið að taka efnin af fólki og stundum er meira að segja enn þá verið að fangelsa fólk þannig að það fari á sakavottorð.