153. löggjafarþing — 7. fundur,  21. sept. 2022.

ávana- og fíkniefni.

5. mál
[19:11]
Horfa

Flm. (Halldóra Mogensen) (P) (andsvar):

Forseti. Þetta er góð umræða. Ég kann í alvörunni að meta hana, mér finnst æðislegt að við séum að eiga þetta samtal. Það er svo margt sem mig langar að ná að dekka á stuttum tíma. En þessi umræða um að — mér finnst allir vera að tala rosalega mikið frá hjartanu og tilfinningunum og ég skil það ofboðslega vel, og um sína reynslu sem aðstandendur og annað. Ég get talað um mína reynslu, ekki sem aðstandandi en hafandi sjálf verið í mikilli neyslu. Ég hef ekki talað um það áður hér í pontu, mér finnst það ekki koma málinu við. En ég get fabúlerað alls konar út frá mínum tilfinningum. Við settum einu sinni stefnu hérna fyrir áratugum, sem var bannstefna og refsistefna sem var ekki byggð á neinum vísindum eða gögnum, bara tilfinningum. Hún er búin að vera gríðarlega skaðleg, og þess vegna finnst mér svo mikilvægt núna að við tökum ákvarðanir út frá gögnum en ekki hvernig okkur líður, út frá okkar upplifun og öðru. Það er það sem mig langar kannski að leggja aðaláherslu á.

Ég talaði um það í ræðu minni og það hefur komið hérna fram varðandi ofskömmtun að fólk veigrar sér við að hringja í neyðaraðstoð, það er raunverulegt vandamál. Það er nýleg rannsókn frá Noregi sem sýndi að notendur vímuefna veigra sér við að hringja í neyðaraðstoð af ótta við lögreglu. Við erum ekki með svona rannsókn hérna heima en ef þú talar við notendur, ef þú talar við helstu skaðaminnkunarsamtökin sem eru að vinna með notendum alla daga, þá koma þessar upplýsingar fram. Ég hef rætt við dómsmálaráðherra síðasta kjörtímabils, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, og hún hafði áhyggjur af þessu líka af því að hún vissi að þetta væri vandamál á Íslandi. Þetta er bara eitt af svo mörgu. Það er enginn að segja að afglæpavæðingin sé að fara að leysa allan vanda, hún er bara að fara að draga úr skaða. Ég er algerlega sammála því að það sé þörf á að stórefla meðferðarúrræði, stórefla. En það sem situr alltaf eftir hjá mér og ég hef ekki fengið almennileg svör við er: (Forseti hringir.) Af hverju eigum við að halda áfram að refsa fólki á meðan við erum að bíða eftir þessum meðferðarúrræðum? (Forseti hringir.) Meðferðarúrræðin eru mikilvæg, þau þurfa að vera fjölbreytt, absalút, við eigum að setja miklu meira fjármagn í þau. (Forseti hringir.) En af hverju á að halda áfram að beita skaðlegri stefnu á meðan við erum að finna út eitthvert fjármagn til að efla meðferðarúrræði?