153. löggjafarþing — 7. fundur,  21. sept. 2022.

ávana- og fíkniefni.

5. mál
[19:23]
Horfa

Eva Sjöfn Helgadóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jódísi Skúladóttur fyrir svarið. Já, þetta er ekki auðvelt og ég held að allir geri sér fulla grein fyrir því að þetta er bara brot af því að takast á við vandann sem við stöndum frammi fyrir, bara pínulítið brot. Það getur alls konar komið upp en þetta snýst um það að fólk treysti sér til þess að vera með fíknivanda og eigi ekki á hættu að vera refsað fyrir það. Þetta snýst bara um það. Og að hver sem fíknin er, hvort sem það er áfengisfíkn eða önnur, þá finnst mér að við eigum að tryggja það sem samfélag að ekki sé refsað fyrir það. En hvað þyrfti að breytast til að þú myndir samþykkja afglæpavæðingu?