orð ráðherra um yfirheyrslur á blaðamönnum.
Forseti. Í febrúar síðastliðnum lét hæstv. fjármálaráðherra eftirfarandi ummæli falla í pistli á Facebook, með leyfi forseta:
„Eru fjölmiðlamenn of góðir til að mæta og svara spurningum lögreglu eins og almennir borgarar? Hvernig getur það talist alvarlegt mál að lögregla óski eftir því að þeir gefi skýrslu?“
Þetta segir ráðherrann um þá óhugnanlegu stöðu að lögreglan á Norðurlandi eystra hafi boðað fjóra blaðamenn til yfirheyrslu með réttarstöðu sakbornings fyrir ætlað brot gegn friðhelgi einkalífs. Þá, rétt eins og nú, lá fyrir að lögreglan vildi yfirheyra blaðamennina vegna frétta sem þeir höfðu skrifað um hina svokölluðu skæruliðadeild Samherja. Hæstv. ráðherra ítrekaði þessa afstöðu sína í öðrum pistli á Facebook síðastliðinn þriðjudag. Pistillinn var svar við ítarlegri grein Þórðar Snæs Júlíussonar, eins fjórmenninganna sem lögreglan hefur nú yfirheyrt, þar sem hann upplýsir um yfirheyrsluna, með leyfi forseta:
„Spurningar þeirra snerust nær einvörðungu um hvernig fjölmiðillinn Kjarninn aflaði gagna til að skrifa umfjöllun og hverjir mögulegir heimildarmenn hans gætu verið.“
Forseti. Þegar þessi ríkisstjórn tók við tók hæstv. forsætisráðherra að sér málaflokk mannréttinda og mannréttindasamninga. Þess vegna hefur þögn hæstv. forsætisráðherra í þessu máli verið eftirtektarverð. Hér eru undir grundvallarmannréttindi. Tjáningarfrelsi blaðamanna, lífæð lýðræðisins. Lögreglan misnotar vald sitt til þess að þagga niður í blaðamönnum fyrir að flytja fréttir. Hæstv. fjármálaráðherra mætir á sviðið til þess að segja blaðamönnum að hunskast bara í yfirheyrslu og hætta að vera svona góðir með sig. Hefur hæstv. ráðherra mannréttindamála engar áhyggjur af þessari atburðarás? Telur hún ekkert athugavert við vinnubrögð lögreglunnar eða er hún sammála afstöðu hæstv. fjármálaráðherra?