153. löggjafarþing — 8. fundur,  22. sept. 2022.

orð ráðherra um yfirheyrslur á blaðamönnum.

[11:04]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég hef haft það fyrir sið að vera ekki að tjá mig um mál sem eru til rannsóknar og finnst það í raun vera nokkuð eðlilegt fyrir ráðherra að gera það ekki. En af því að hv. þingmaður kallar eftir minni afstöðu og telur að ég hafi þagað um þessi mál þá get ég bara rifjað upp það sem ég hef áður sagt um þau hér í þinginu, á þessum vettvangi, því ég hef ekki þagað um þessi mál. Ég hef sömuleiðis látið verkin tala þegar skoðuð eru t.d. þau lagaákvæði sem vitnað er til í þessari umræðu um vernd heimildarmanna. Ég vil minna á að þau ákvæði komu inn í lögin að mínu frumkvæði, árið 2011, í lögum um fjölmiðla þar sem réttarstaða blaðamanna var bætt verulega. Það er þess vegna sem ég hef sömuleiðis beitt mér fyrir úrbótum á upplýsingalögum, til að styrkja stöðu fjölmiðla, og það er þess vegna sem ég lagði hér fram frumvarp um vernd uppljóstrara sem enn styður réttarstöðu fjölmiðla. Ef hv. þingmaður velkist í vafa um mína afstöðu þá bendi ég henni á þau mál sem ég hef lagt hér fram og fengið samþykkt því Alþingi hefur viljað styrkja réttarstöðu fjölmiðla. Ég tel ljóst í svona málum, og hef sömuleiðis sagt það, að lögreglan verður að vera mjög meðvituð um það að allar rannsóknaraðgerðir sem beinast gegn fjölmiðlum geta haft fælingaráhrif gagnvart þeim fjölmiðlum og því ber lögreglunni að fara sérstaklega varlega þegar um er að ræða frjálsa fjölmiðla sem eru að fjalla um viðkvæm mál í samfélaginu í sínum rannsóknum. Þetta hef ég áður sagt og ítreka það hér með.