153. löggjafarþing — 8. fundur,  22. sept. 2022.

Virðismat kvennastarfa.

[11:09]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. „Konur búa enn við launamisrétti 60 árum eftir að launajafnrétti var leitt í lög. Kynskiptur vinnumarkaður er ein helsta skýringin á kynbundnum launamun.“

Þetta má lesa í drögum að skýrslu starfshóps um endurmat á virði kvennastarfa sem skilað var til forsætisráðherra fyrir réttu ári. — Og nú eru næstum því allir karlarnir farnir úr salnum.

Við búum í samfélagi sem enn metur vinnuframlag kvenna til færri fiska en karla. Vandinn er kerfislægur og endurspeglar kynjakerfið sem við búum í og við. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni frá árinu 2020 var svokallaður leiðréttur launamunur um 4% og óleiðréttur launamunur kynjanna að jafnaði 12,6% en munur á atvinnutekjum karla og kvenna var 23,5%. Og um það fjallar þessi umræða.

Íslenskur vinnumarkaður er mjög kynskiptur. Konur sinna að miklum meiri hluta störfum innan heilbrigðis- og menntageirans. Þær eru hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, ljósmæður, leik- og grunnskólakennarar, og þannig mætti áfram telja. Ekki er langt síðan konum voru send þau skilaboð að þær þyrftu bara að mennta sig til starfa sem karlar höfðu áður sinnt; verða verkfræðingar, prestar, læknar og iðnaðarmenn. Þetta hafa konur gert í miklum mæli, sérstaklega í þeim störfum sem krefjast háskólamenntunar, en karlar hafa ekki flykkst með sama hætti í kvennastörfin. Rétt er að fram komi að tölfræðileg gögn um stöðu kynjanna á vinnumarkaði eru greind í tvö kyn: karla og konur. Litlar sem engar upplýsingar liggja fyrir um stöðu kynsegin fólks. Mér er aðeins kunnugt um eina rannsókn þar sem kjör voru skoðuð eftir kynhneigð, en það var nýlega gert á vegum BHM. Þar benda fyrstu niðurstöður til þess að gagnkynhneigðar konur séu lægst skipaðar í lagskiptingu feðraveldisins.

Forseti. Lykilspurningin sem við þurfum að svara er í sjálfu sér einföld: Hvers vegna borgum við fólki hærra kaup fyrir að sýsla með peninga en að starfa með börnum? Svarið við henni afhjúpar í raun verðmætamat samfélagsins. Það var því gleðiefni að BSRB, undir forystu Sonju Ýrar Þorbergsdóttur, skyldi fá það í gegn í síðustu kjarasamningum að skoða skyldi verðmætamat kvennastarfa og þróa nýjar leiðir til þess að meta þau, því að um þetta snýst verkefnið; að störf geti verið ólík en jafn verðmæt.

Ef við skoðum tekjustigann í tekjutíundum kemur í ljós að því ofar sem við förum í stigann því meiri verður launamunur kynjanna í nær öllum starfsgreinum. En heildarlaun karla eru alltaf hærri en heildarlaun kvenna. Konur eru miklum mun ólíklegri til að vera á hæstu laununum jafnvel þó að þær séu sérfræðingar eða stjórnendur. Konur á lágum launum eru á lægri launum en karlar á lágum launum. Karlar með grunnmenntun eru með hærri heildartekjur en konur með starfs- og framhaldsmenntun.

Hæstv. forseti. Það þarf að spyrja: Hvaða þættir eru metnir til launa á íslenskum vinnumarkaði? Samskiptahæfni, teymisvinna, innsæi, tilfinningagreind, þolinmæði, samkennd, tilfinningaálag? Með öðrum orðum, hvernig metum við óáþreifanleg verðmæti sem skapast t.d. í störfum í heilbrigðis- og menntakerfinu? Starfshópurinn, sem ég vitnaði til og er tilefni þessarar umræðu, gerði nokkrar tillögur til forsætisráðherra. Ég vil nota þetta tilefni til að spyrja hvort og þá hvaða þróunarverkefni sé verið að vinna í framhaldi af skýrslunni og hvað líði framgangi annarra tillagna sem starfshópurinn gerði og hvort vinna megi gegn kynskiptingu vinnumarkaðarins eftir öðrum leiðum en nú er gert. Mig langar líka til að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort hún sjái tækifæri í aðdraganda kjaraviðræðna, sem verða í vetur, þar sem allir samningar á íslenskum vinnumarkaði verða lausir, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði, til þess að styrkja stöðu kvennastétta á vinnumarkaði.

Fyrst ég á enn nokkrar sekúndur eftir, hæstv. forseti, þá langar mig til að ítreka þá augljósu staðreynd að ævitekjur kvenna á Íslandi, þegar mið er tekið af heildartekjum, eru u.þ.b. fjórðungi lægri en ævitekjur karla. Við verðum að vinda ofan af þessari staðreynd af því að það er auðvitað líka þannig að ævitekjur ráða eftirlaunum og kjörum og fátækt er mikil meðal kvenna á eftirlaunum.