153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

varamenn taka þingsæti.

[13:32]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Sigurður Ingi Jóhannsson, 2. þm. Suðurk., verði fjarverandi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista flokksins í kjördæminu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.

Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.