153. löggjafarþing — 9. fundur,  27. sept. 2022.

um fundarstjórn.

[13:33]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Herra forseti. Í fyrsta skipti sem mál sem varðaði brot ráðherra á siðareglum fór fyrir forsætisnefnd þá blasti auðvitað við að það var ákveðinn prófsteinn fyrir Alþingi. Það skiptir máli að aðhald siðareglna sé virkt og það skiptir máli að það gildi fyrir alla þingmenn, líka þá þingmenn sem eru ráðherrar. Frá fyrsta fundi blasti við að það þvældist fyrir að um ráðherra var að ræða. Siðanefnd fékk síðan ekki að leggja mat á málið heldur var því vísað frá forsætisnefnd heilum fimm mánuðum eftir að kvörtun barst. Þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks komu í veg fyrir að málið fengi umfjöllun í siðanefnd. Það fer gegn þeim tilgangi siðareglna að efla traust almennings á Alþingi. Ég vil nefna að vinnubrögðin voru svo fráleit að það var ekki einu sinni einhugur innan ríkisstjórnarflokkanna um þessa afgreiðslu og ég vil hrósa þingmanni Vinstri grænna fyrir hennar vinnubrögð í málinu. Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur sýndi þinginu og sýndu almenningi að það skiptir máli hver á í hlut við afgreiðslu þessara mála og með því hafa þeir valdið miklum skaða.